Keppni
Oddný Ingólfsdóttir er Vínþjónn ársins 2026
Nú er nýlokin keppnin um Vínþjónn ársins 2026, sem má nú líka kalla Íslandsmeistaramót Vínþjóna sem fram fór á Hilton í gær mánudaginn 22. júní.
Oddný Ingólfsdóttir stóð uppi sem sigurvegari eftir langan og strembinn dag þar sem keppendur glímdu við skriflegt próf, skriflegt blindsmakk á léttvíni og staðfestingu á sterk víni ásamt umhellingu, kampavíns serveringu, matar og vínpörun, leiðréttingu vínlista og svo munnlegu blindsmakki af léttvíni, öll keppnin fór fram á ensku.
Vínhúsið Baron del Ley var styrkaraðili mótsins.
Evan Reynolds frá AMKA lenti í öðru sæti og Lyne Tissot á Port 9 í því þriðja.
Dómarar voru:
Alba E. H. Hough
Peter Hansen
Þorleifur „Tolli“ Sigurbjörnsson
Manuel Schembri
Vínþjónasamtökin óskar öllum keppendum til hamingju með árangurinn og Hilton Hóteli kærlega fyrir aðstöðu og frábæra þjónustu.
Ertu búin/n að skrá þig í Vínþjónasamtökin?
Nýir meðlimir geta skráð sig í Vínþjónasamtökin með því að senda fullt nafn og kennitölu í tölvupóst á [email protected]
- Oddný Ingólfsdótir
- Even Reynolds
- Lyne Tissot
- Zuzanna Jędrzejczak
- Óliver Goði Dýrfjörð
- Óliver Goði Dýrfjörð í umhellingu
Myndir: Vínþjónasamtökin
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni5 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau












