Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Ferköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu

Ferkantaðir hamborgarar verða áfram í aðalhlutverki á Litlu Fabrikkunni við Tryggvagötu.
Mynd: Facebook / Íslenska Hamborgarafabrikkan
Litla Fabrikkan, systurveitingastaður Hamborgarafabrikkunnar, hefur verið opnuð við Tryggvagötu í Reykjavík, í húsnæðinu þar sem Grillhúsið var áður til húsa.
Opnun staðarins tafðist um tæpa þrjá mánuði vegna leyfismála hjá Reykjavíkurborg. Mbl.is greinir frá því að bráðabirgðaleyfi hafi nú fengist á meðan ný teikning af húsnæðinu er til afgreiðslu.

Litla Fabrikkan, systurveitingastaður Hamborgarafabrikkunnar.
Mynd: Facebook / Íslenska Hamborgarafabrikkan
Ferköntuðu hamborgararnir, sem Hamborgarafabrikkan er þekkt fyrir, verða áfram í aðalhlutverki en matseðillinn verður að hluta sniðinn að ferðamönnum og þeim sem búa og starfa í miðborginni. Jafnframt stendur til að leggja aukna áherslu á fisk og sjávarfang.
Helgi Hermannsson hjá Fabrikkunni segir í samtali við mbl.is að einnig verði boðið upp á uppistand, lifandi tónlist og aðra skemmtun á kvöldin. Markmiðið sé að skapa létta barstemningu á staðnum.
Formleg opnunarhátíð Litlu Fabrikkunnar fer fram í dag, laugardaginn 29. ágúst, klukkan 14.00.
Nánar má lesa um Litlu Fabrikkuna í umfjöllun mbl.is.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn4 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn4 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn4 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn6 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar6 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




