Viðtöl, örfréttir & frumraun
Myndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
Hótel- og matvælaskólinn í Menntaskólanum í Kópavogi fagnaði 30 ára afmæli sínu með glæsilegri hátíð laugardaginn 5. september.
Fjölbreytt dagskrá var í boði þar sem matur, keppnir og kynningar voru í aðalhlutverki. Meðal þess sem fór fram var matarmarkaður smáframleiðenda, fyrirtækjakynningar, gúrkuskurðarkeppni og undankeppni matreiðslukeppninnar Arctic Young Chef.
Þá voru matarvagnar á staðnum, landslið kjötiðnaðarmanna starfrækti kjötbúð og boðið var upp á pop-up kleinuhringjabakarí. Gestir gátu einnig kynnt sér starfsemi skólans og fjölbreytt nám sem þar er í boði.
Góð stemning ríkti í skólanum og settu gestir, nemendur, starfsfólk og fagfólk úr veitingageiranum skemmtilegan svip á afmælishátíðina.
Meðfylgjandi myndir frá hátíðarhöldunum tók Rúnar Hreinsson.
Myndir: Rúnar Hreinsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði



























