Freisting
Kokkarnir.is vinsæll vefur
Það má sanni segja að vefurinn http://www.kokkarnir.is hefur slegið rækilega vel í gegn, en samkvæmt teljara frá Íslenska fyrirtækinu Modernus mældist vefurinn með 390 einstaka gesti á þriðjudaginn 27 sept. eða alls tæp 500 innlit, þ.e.a.s. sumir voru að koma tvisvar yfir daginn. Rúnar kemur í morgunþættinu „Úr Ísland í bítið“ alla mánudagsmorgna og er heimasíðan Kokkarnir.is auglýst í leiðinni og það hefur haft svona góð áhrif. Fréttamaður sló á þráðinn til Rúnars Gíslasonar eiganda veisluþjónustunnar Kokkarnir og ræddi stuttlega við hann. Rúnar hafði mikið að gera, en hann var að skipuleggja næstu daga úr pöntunum sem höfðu borist inn yfir daginn.
Sæll Rúnar, hvað er annars að frétta, er ekki nóg að gera?
„Satt best að segja þá er búið að vera rífandi vöxtur í fyrirtækinu þetta árið, en það er orðið svo troðið af veislum útum allann bæ og í veislusalnum í Fóstbræðraheimilinu að ég er upp fyrir haus alla daga“
Ég er nú ekki hissa á þessum vinsældum, enda ertu afburðagóður kokkur og skemmtilegur karakter“, en við þessi orð hjá fréttamanni, þá tísti í Rúnari og sagði „tja, maður passar upp á að gera allt vel, það sem snýr að viðskiptavininum.“
Hvar er hinn helmingurinn af þér, þ.e.a.s. hann Jón Arnar (en Jón Arnar er annar eigandi veisluþjónustunar)
Hann hefur ekki unnið hérna í 2 ár en maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér.
Er búið að vera mikið af pöntunum fyrir næsta fermingartímabil?
Það er vangefið að gera í fermingunum, en það hefur verið mikil aðsókn að veislusalnum í Fóstbræðraheimilinu.
Hvað eru margir starfsmenn að vinna hjá þér?
Núna eru 25 starfsmenn sem vinna í hinum ýmsum stöðum sem Veisluþjónustan Kokkarnir sjá um, m.a. í: í fiskvinnslu, fiskborði í Hagkaupum Garðabæ, Fiskborðið í Hagkaupum Eiðstorgi, bílstjórar, Osta- og Sælkeraborð í Hagkaupum í kringlunni, Fiskborðið í Hagkaupum í Spönginni, fiskborði í Hagkaupum Skeifunni og síðan er mín stoð og stytta í eldhúsinu hann Guðjón Birgir Rúnarsson en hann er yfirmatreiðslumaður Veisluþjónustunnar. Yfirþjónn er Steinþór Einarsson.


En við þessi orð, þá varð Rúnar að hlaupa fram í eldhús að hjálpa til við að koma út eina veislu útí bæ.
Heimasíða: www.kokkarnir.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Markaðurinn6 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt5 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn7 dagar síðanOstur sem lyktar eins og „sviti og eftirsjá“
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju



