Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Opnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni

Birting:

þann

Jokes Aside

Johan Evers, einn þekktasti barþjónn Svíþjóðar og stofnandi kokteilbarsins Jokes Aside.

Nýr kokteilbar hefur opnað þar sem frumlegir drykkir, vandað barsnarl og afslappað andrúmsloft eru í öndvegi.

Barinn nefnist Jokes Aside og er nýjasta verkefni verðlaunaða barþjónsins Johans Evers. Hann opnaði staðinn ásamt Emmu Wili-Blomé við Regeringsgatan á Norrmalm í Stokkhólmi í júní.

Eftir sjö ár með A Bar Called Gemma var Johans Evers tilbúinn að takast á við nýtt verkefni þar sem meira svigrúm væri fyrir frumlega kokteila, fjölbreytt barsnarl og nýjar hugmyndir. Jokes Aside er stærsta verkefni hans til þessa.

Í samtali við sænska fréttamiðilinn Besöksliv segir Johans Evers að markmiðið hafi verið að skapa bar sem hann sjálfur hefði gaman af að heimsækja. Þar ættu framúrskarandi þjónusta, vandaðir drykkir, góður matur, gleði og hlátur að fara saman.

Jokes Aside

Nýja húsnæðið er þrisvar sinnum stærra en fyrri staðurinn. Barinn er staðsettur í hverfi þar sem fjölmörg alþjóðleg fyrirtæki eru með höfuðstöðvar og verslunarmiðstöðin Mood er skammt undan.

Sænskar aðferðir og bragð frá öllum heimshornum

Áhersla er lögð á nákvæm vinnubrögð, leikgleði og sköpun. Hugmyndirnar eru sóttar víða að úr heiminum en sænsk hráefni og aðferðir skipa jafnframt stóran sess.

Á vín- og kokteilseðlinum eru signature kokteilar, klassískir kokteilar og drykkir sem útbúnir eru eftir óskum gesta. Allir kokteilarnir kosta 185 sænskar krónur, eða um 2.400 íslenskar krónur.

Meðal signature kokteila er Sunbeam, sem inniheldur gin, japanskt shochu, sænsk epli, klementínur og hunang. Five Star Holiday er blandaður úr rommi, kakói, Cocchi Rosa, sænskum jarðarberjum og kókos, en í Rabarbara koma meðal annars saman rabarbarabætt gin, ákvavíti, hindberjaedik, hvítt púrtvín og rabarbaralíkjör.

Þar má einnig finna kokteila á borð við Showgirl, Cherry-Cherry-Ya, Kagoshima Highball, Heatwave 2.0 og Coney Island. Á klassíska hluta seðilsins eru meðal annars Espresso Martini, Old Fashioned, Negroni, Whisky Sour, Dirty Martini og Dry Martini.

Óáfengir drykkir eru einnig í boði. High Horse er útbúinn úr grænu tei, ástaraldini og fíkjulaufum, en Orchard Spritz inniheldur meðal annars oolong-te, epli, kókos og freyðandi sólberjavín. Á seðlinum er jafnframt úrval af vínum, kampavíni, bjór og eplasíder.

Nýjar hugmyndir rata á matseðilinn

Jokes Aside

Matseðillinn

Johans Evers kýs að kalla matinn barsnarl fremur en kvöldverð og segir matseðilinn eiga eftir að taka reglulegum breytingum. Starfsfólk eldhússins fær frjálsar hendur til að þróa nýja rétti og prófa sig áfram.

Verðið á seðlinum er á bilinu 60 til 165 sænskar krónur, eða um 775 til 2.130 íslenskar krónur. Þar er meðal annars boðið upp á Nocellara-ólífur, Marcona-möndlur, súrsað grænmeti, súrdeigsbrauð með þeyttu smjöri, Comté-ost og úrval af kjötmeti.

Einnig má finna boquerones, nautakjötstartar með chimichurri, eggjarauðu og kartöfluflögum ásamt tómatrétti með romesco-sósu, súrsaðri melónu, stracciatella-osti og nektarínu.

Metnaðarfullur en ekki hátíðlegur

Sjálfbærni er mikilvægur þáttur í rekstrinum og var barinn byggður úr sænskum efnum frá sænskum birgjum. Eigendurnir vonast til þess að framtakið geti hvatt stærri fyrirtæki til að feta sömu braut.

Fyrstu fimm vikurnar í rekstri fóru fram úr væntingum, þrátt fyrir að staðurinn hafi opnað um mitt sumar þegar mörg fyrirtæki í nágrenninu voru í sumarleyfum.

Nafnið Jokes Aside endurspeglar hugmyndafræði staðarins. Metnaðurinn á að vera mikill en stemningin afslöppuð, lífleg og skemmtileg.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Jokes Aside.

Myndir: Instagram / @jokesasidecocktailbar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið