Markaðurinn
Gazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
Gazpacho er köld grænmetissúpa sem á uppruna sinn á Spáni, nánar tiltekið í Andalúsíu. Hún nýtur mikilla vinsælda yfir sumarmánuðina þegar ferskt grænmeti er í miklu úrvali og hitinn mikill. Hér að neðan er uppskrift að þessari vinsælu súpu, birt með góðfúslegu leyfi Sölufélags garðyrkjumanna og íslenskt.is. Höfundur uppskriftarinnar er Sigurveig Káradóttir.
Innihaldslýsing:
1 kg tómatar
500 g gúrka
300 g rauð paprika
1- 2 hvítlauksrif
50 ml hvítvínsedik
150-200 ml jómfrúarolía
100-150 g dagsgamalt brauð án skorpu
Leiðbeiningar:
Gúrkurnar eru skrældar og paprikurnar fræhreinsaðar.
Allt grænmetið skorið í litla bita og sett í skál ásamt brauðinu.
Hluta af edikinu og jómfrúarolíunni bætt saman við ásamt örlitlu sjávarsalti og hvítum pipar.
Látið standa við stofuhita í um 30 mínútur, eða þar til allt hefur blandast vel.
Þá er allt maukað með töfrasprota, restinni af jómfrúarolíunni og edikinu bætt saman við og smakkað til með salti og pipar.
Kælt vel áður en borið fram.
Einföld, fljótleg og stútfull af næringu.
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana




