Markaðurinn
Svona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
Hver elskar ekki sítrónukökuna á Starbucks. Silkimjúk og safarík sítrónukaka með ferskum sítrónukeim og sætu glassúri. Tilvalinn helgarbakstur, nú eða bara í miðri viku.
Sítrónukaka með glassúr að hætti Starbucks
Innihald
220 g sykur
Börkur af 2 sítrónum
120 g smjör, við stofuhita
3 stk. egg
2 msk. safi úr sítrónu
1 tsk. vanilludropar
1 tsk. sítrónudropar
220 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
100 g grísk jógúrt
80 ml mjólk
Sítrónu síróp
60 ml vatn
50 g sykur
Safi af ½ sítrónu
Glassúr
120 g flórsykur
2 msk. mjólk
2 msk. safi úr sítrónu
Aðferð
- Hitið ofninn í 180 gráður og setjið smjörpappír í brauðform.
- Setjið sykur og sítrónubörk í skál og hrærið vel saman með sleif þannig að sykurinn og börkurinn blandist vel saman.
- Bætið smjöri saman við og hrærið þar til blandan verður ljós og létt.
- Bætið eggjum saman við, einu í senn og hrærið vel á milli. Gott er að skafa hliðarnar á skálinni.
- Bætið safa úr sítrónu, vanilludropum og sítrónudropum og hrærið saman.
- Setjið hveiti, lyftiduft og salt saman í skál og hrærið saman. Blandið því saman við ásamt grískri jógúrt og mjólk. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman og skafið hliðarnar á skálinni.
- Setjið deigið í brauðformið og bakið í 50 mínútur, eða þar til tannstöngull kemur þurr upp úr miðju kökunnar. Leyfið kökunni að kólna örlítið áður en þið setjið síróp og glassúr ofan á.
Sítrónu síróp
- Setjið vatn og sykur í pott yfir meðal háan hita og hitið þar til vatnið fer að sjóða. Látið sjóða í um eina mínútu og hrærið. Takið pottinn af og blandið sítrónusafa saman við.
- Penslið sírópinu ofan á kökuna og leyfið henni að standa á meðan glassúrinn er útbúinn.
Glassúr
- Setjið flórsykur, mjólk og sítrónusafa í skál og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Ef ykkur finnst glassúrinn of þunnur þá bætið þið meiri flórsykri saman við, ef hann er of þykkur bætið örlítið af mjólk saman við.
- Setjið glassúrinn yfir kökuna.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Markaðurinn6 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn5 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt2 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Keppni6 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn5 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Keppni5 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september




