Markaðurinn
Ný uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
Ný uppskera af íslensku spergilkáli er nú komin í verslanir um land allt. Það kemur fram í tilkynningu frá Sölufélagi garðyrkjumanna.
Þar er bent á að fátt jafnist á við nýskorið spergilkál sem fer beint af akrinum í verslanir og á matarborðið. Ný uppskera einkennist af ferskleika og góðum gæðum og markar upphaf tímabils íslensks spergilkáls.
Ríkt af næringarefnum
Spergilkál er gjarnan talið meðal næringarríkustu grænmetistegunda og er sérstaklega trefjaríkt. Auk þess er það ríkt af C-vítamíni og kalíum og inniheldur einnig mikið magn fólínsýru.
Í tilkynningunni er jafnframt minnt á að ekki aðeins blómið nýtist vel heldur einnig stilkurinn og blöðin. Við eldun verða þau mjúk og henta vel í fjölbreytta matargerð, hvort sem spergilkálið er soðið, gufusoðið, steikt eða bakað.
Fólínsýra mikilvæg á meðgöngu
Sölufélag garðyrkjumanna vekur einnig athygli á því að fólínsýra gegnir mikilvægu hlutverki, ekki síst fyrir konur á meðgöngu og þroska fósturs.
Með komu nýrrar uppskeru gefst neytendum því kostur á að njóta fersks íslensks spergilkáls sem er bæði bragðgott og næringarríkt.
Mynd: Facebook / islenskt.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Keppni1 dagur síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn2 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn22 klukkustundir síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Markaðurinn2 dagar síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun14 klukkustundir síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð




