Markaðurinn
Fljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna
Uppskrift:
1 pakki Meksikanske gryte frá Toro
500 g nautahakk eða annað hakk
Litlar vefjur 17-20 stk
kóríander og sprettur – má sleppa
rifinn ostur
sósan:
sýrður rjómi
salsa sósa
Aðferð:
Þú byrjar á því að steikja hakkið og blandar svo grýtu pakkanum frá Toro út í hakkið ásamt vatni skv leiðbeiningum. Blandan þarf að malla og taka sig við vægan hita í um 20 mínútur. Á meðan er tilvalið að ná í vefjurnar. Þú getur annað hvort notað litlar vefjur eða skorið 4 vefjur út úr einni stórri (stærsta gerðin).
Þegar taco blandan er tilbúin er hafist handa við að útbúa hringinn. Ef þú ert að gera hringinn á ofnplötu er sniðugt að setja litla sósuskál eins og á myndinni í miðjuna og raða svo taco fylltum vefjum í kring um skálina, þá færðu fullkominn hring.
Að lokum er ostur settur yfir vefjurnar og þetta hitað í um 5-10 mínútur við 180 gráður svo osturinn bráðni.
Á meðan er sósan útbúin en hún er gerð með því að blanda saman til helminga sýrðum rjóma og salsa sósu.
Þegar rétturinn er borinn fram er gaman að setja eitthvað grænt með, kóríander, sprettur eða klettasalat en því má einnig sleppa.
Höfundur: Helga Magga / Lindsay
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag






