Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Helliskaffi opnað í Hellisgerði með metnaðarfullar hugmyndir

Veitingahjónin Knútur Hreiðarsson og Theódóra Ingibergsdóttir standa að rekstri Helliskaffis í Hellisgerði.
Nýtt kaffihús hefur tekið til starfa í Hellisgerði í Hafnarfirði þar sem hjónin Knútur Hreiðarsson matreiðslumaður og Theódóra Ingibergsdóttir standa að rekstrinum. Samkvæmt umfjöllun hafnarfjordur.is er markmiðið að skapa notalegan samkomustað þar sem gestir geti sest niður, notið garðsins og slakað á í rólegu umhverfi.
Helliskaffi verður opið sem kaffihús yfir daginn en á kvöldin verður boðið upp á veitingar þar sem áhersla verður á íslenskan og skandinavískan mat með tapasívafi. Á virkum dögum opnar staðurinn klukkan 11 en um helgar klukkan 10, meðal annars með fjölskyldur í huga sem vilja njóta Hellisgerðis.
Central Perk Hafnarfjarðar
Í samtali við hafnarfjordur.is segir Knútur að þau vilji skapa sérstaka stemningu á staðnum.
„Við viljum að fólk gleymi tímanum hér. Séu hér saman og viti ekki hvað tímanum líður. Það er pælingin.
Við viljum að þetta verði Central Perk úr Friends. Þetta verði miðpunktur þar sem fólk kemur nær sér niður og losar orku eftir amstur hversdagsins.“
Vill þróa staðinn áfram
Knútur er enginn nýgræðingur í veitingageiranum en hann var meðal stofnenda Le Kock og Deigs. Hann segir metnaðinn fyrir matargerðinni áfram vera drifkraftinn að verkefninu.
Í umfjöllun hafnarfjordur.is segir hann jafnframt að hann hafi stórar hugmyndir um framtíð Helliskaffis. Þar nefnir hann meðal annars fleiri viðburði á sviðinu í Hellisgerði, pop-up kvöld með öðrum matreiðslumönnum og stöðuga þróun staðarins.
„Ég vil sjá fleiri viðburði á sviðinu og pop-up viðburði frá öðrum matreiðslumönnum. Ég ætla að þróa staðinn áfram, breyta. Aldrei að stoppa.“
Að sögn Knúts er þó mikilvægt að byggja reksturinn upp í rólegheitum og finna réttan takt fyrstu mánuðina. Hann segist jafnframt hlakka til að sjá hvernig Hafnfirðingar taki nýja staðnum og nýti Hellisgerði sem samkomustað. Hægt er að lesa nánar um verkefnið á hafnarfjordur.is.
Myndir: hafnarfjordur.is
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð







