Markaðurinn
Gazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
Gazpacho er köld grænmetissúpa sem á uppruna sinn á Spáni, nánar tiltekið í Andalúsíu. Hún nýtur mikilla vinsælda yfir sumarmánuðina þegar ferskt grænmeti er í miklu úrvali og hitinn mikill. Hér að neðan er uppskrift að þessari vinsælu súpu, birt með góðfúslegu leyfi Sölufélags garðyrkjumanna og íslenskt.is. Höfundur uppskriftarinnar er Sigurveig Káradóttir.
Innihaldslýsing:
1 kg tómatar
500 g gúrka
300 g rauð paprika
1- 2 hvítlauksrif
50 ml hvítvínsedik
150-200 ml jómfrúarolía
100-150 g dagsgamalt brauð án skorpu
Leiðbeiningar:
Gúrkurnar eru skrældar og paprikurnar fræhreinsaðar.
Allt grænmetið skorið í litla bita og sett í skál ásamt brauðinu.
Hluta af edikinu og jómfrúarolíunni bætt saman við ásamt örlitlu sjávarsalti og hvítum pipar.
Látið standa við stofuhita í um 30 mínútur, eða þar til allt hefur blandast vel.
Þá er allt maukað með töfrasprota, restinni af jómfrúarolíunni og edikinu bætt saman við og smakkað til með salti og pipar.
Kælt vel áður en borið fram.
Einföld, fljótleg og stútfull af næringu.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel16 klukkustundir síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn7 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Markaðurinn17 klukkustundir síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Frétt7 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð



