Markaðurinn
Lærðu af einum fremsta matarljósmyndara Norðurlanda
Að fanga augnablikið | Láttu myndirnar selja | Betra myndefni | Sterkari ímynd | Fleiri viðskiptavinir
Nú gefst einstakt tækifæri til að læra af sænska ljósmyndaranum Karl Petersson, einum fremsta matarljósmyndara Norðurlanda.
Kalli hefur áratuga reynslu af myndatökum fyrir matreiðslubækur, veitingastaði og matvælafyrirtæki. Á þessu hagnýta námskeiði kennir hann þér að skapa faglegt og áhrifaríkt myndefni með iPhone eða einfaldri myndavél, án flókins búnaðar.
Unnið verður með raunverulegar aðstæður úr matvæla- og veitingagreinum. Þú lærir að fanga rétti, vörur og stemningu þannig að myndirnar veki athygli, styrki vörumerkið og nýtist á samfélagsmiðlum, vefsíðum, matseðlum og í öðru kynningarefni.
Þú þarft ekki að vera ljósmyndari, aðeins vilja láta myndirnar vinna með þér.
Umsagnir þátttakenda á fyrri námskeiðum:
- „This course was amazing, with an awesome teacher. Karl is a great human.“
- „Frábært námskeið í alla staði, væri til í framhaldsnámskeið!“
Námskeiðið er kennt þrjá seinniparta frá kl. 14:00 til 18:00 og hefst 21. september.
Takmarkað sætaframboð.
Verð aðeins 12.500 kr. fyrir félagsmenn.
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt7 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Frétt2 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað




