Markaðurinn
Viltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?
Iðan fræðslusetur býður upp á námskeiðið „Ofurkraftar í matvæla- og veitingagreinum með aðstoð gervigreindar“ – hagnýtt gervigreindarnámskeið á mannamáli sem sparar tíma, einfaldar dagleg verkefni og eykur afköst.
Námskeiðið hefst 5. október og skráningu lýkur 1. október.
Þetta er ekki almennt gervigreindarnámskeið heldur hagnýtt námskeið sem er sérstaklega þróað fyrir starfsfólk og stjórnendur í matvæla- og veitingagreinum.
Á fjórum hagnýtum vinnustofum lærir þú hvernig nýjustu gervigreindartólin geta hjálpað þér að vinna hraðar og markvissar. Þú kynnist meðal annars ChatGPT, Claude, Gemini og NotebookLM og lærir hvenær og hvernig hvert tól nýtist best.
Sérstaða námskeiðsins felst í því að unnið er með raunveruleg verkefni úr þínu starfsumhverfi. Hvort sem þú ert kokkur, bakari, kjötiðnaðarmaður, þjónn eða stjórnandi færðu tækifæri til að vinna með eigin áskoranir og þróa lausnir sem nýtast í daglegu starfi.
Gervigreind getur meðal annars aðstoðað við matseðlagerð, uppskriftir, kostnaðarútreikninga, birgðahald, gæðaskjöl, HACCP, vaktaplön, tölvupósta og markaðsefni – verkefni sem annars geta tekið dýrmætan tíma.
Að námskeiði loknu hefur þú öðlast þekkingu og færni til að taka fyrstu skrefin í þróun eigin sérsniðins AI-aðstoðarmanns. Þú færð jafnframt verkfærasett, sniðmát, vinnulag og hagnýtar lausnir sem geta einfaldað dagleg verkefni og sparað tíma.
Námskeiðið er þróað í samstarfi við Akademias. Kennslan fer fram á mannamáli, án flókins tækniorðaforða, með áherslu á hagnýta notkun og raunverulegan ávinning.
Sérstakt tækifæri fyrir félagsfólk Iðunnar
Almennt verð námskeiðsins er 199.000 kr., en félagsfólk Iðunnar greiðir aðeins 49.800 kr. fyrir allt námskeiðið.
Tryggðu þér sæti – skráningu lýkur fimmtudaginn 1. október.
Nánari upplýsingar og skráning:
Ofurkraftar í matvæla- og veitingagreinum með aðstoð gervigreindar.
-
Frétt4 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Keppni2 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Markaðurinn1 dagur síðanOktóbertilboð Nathan fyrir veitingageirann




