Markaðurinn
Þrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
Hvað sameinar viskí frá Skotlandi, Japan og Taívan og hvað gerir það ólíkt? Viskísérfræðingurinn Jacek Rudecki og Iðan fræðslusetur bjóða upp á námskeiðið „Þrír heimar viskís – Skotland, Japan og Taívan“ föstudaginn 2. október kl. 14–16 í Húsi fagfélaganna, Stórhöfða 29.
Á námskeiðinu verða smakkaðar fimm tegundir af viskíi í leiðsagðri samanburðarsmökkun. Skosk viskíhefð er útgangspunkturinn og skoðað hvernig hún hefur mótað framleiðslu í Japan og Taívan. Þótt aðferðirnar séu oft sambærilegar geta loftslag, þroskun og val á tunnum skilað afar ólíkum ilmi, bragði og karakter.
Þátttakendur þjálfast í að smakka, lýsa og bera saman viskí og öðlast hagnýta þekkingu sem nýtist við að kynna það og mæla með því fyrir gesti. Námskeiðið hentar því vel fagfólki í veitingageiranum og öðrum sem vilja kynnast fjölbreyttum heimi viskís.
Almennt verð er 21.500 kr., en félagsfólk Iðunnar greiðir aðeins 4.300 kr.
Nánari upplýsingar og skráning: Þrír heimar viskís – Skotland, Japan og Taívan
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




