Markaðurinn
Vel heppnuð Matur & Vín sýning hjá Innnes – Myndir og myndband
Stórsýningin Matur & Vín 2026 fór fram í annað sinn í vikunni á vegum Innnes í Korngörðum 3.
Sjá einnig: Um þúsund manns heimsóttu sýninguna Matur og vín – Myndir
Um 60 matvæla- og vínbirgjar tóku þátt í sýningunni í ár og kynntu fjölbreytt úrval af spennandi vörum fyrir gestum.
Mætingin var frábær og ríkti góð stemning meðal gesta og sýnenda. Aðstandendur voru að vonum í skýjunum með viðtökurnar og vonuðust til þess að gestir hefðu notið kvöldsins jafn vel og þeir sjálfir.
Innnes færði öllum gestum, birgjum og þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við að gera kvöldið eftirminnilegt kærar þakkir.
Meðfylgjandi ljósmyndir frá sýningunni tók Þorgeir Ólafsson ljósmyndari.
Myndskeið:
Myndir: Þorgeir Ólafsson ljósmyndari.
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð










