Markaðurinn
Innnes auglýsir spennandi sölustarf
Um er að ræða sölu á matvöru og tengdum vörum til fjölbreytts hóps viðskiptavina á fyrirtækjasviði; stofnana, mötuneyta, veitingastaða, hótela og fleiri.Í boði er krefjandi og spennandi starf fyrir einstakling þar sem reynir á góða þjónustulund, söluhæfileika og frumkvæði.
Helstu verkefni:
- Sala og ráðgjöf til fyrirtækjaviðskiptavina.
- Framúrskarandi þjónusta og eftirfylgni.
- Uppbygging og viðhald góðra viðskiptasambanda.
- Kynning á nýjum vörum og lausnum fyrir viðskiptavini.
Við leitum að einstaklingi sem
- Hefur reynslu af sölu eða brennandi áhuga á sölustörfum.
- Hefur þekkingu á matvörum eða mikinn áhuga á mat og matargerð.
- Er hugmyndaríkur, drífandi og nýtur þess að ná árangri.
- Hefur framúrskarandi samskiptafærni, þjónustulund og faglega framkomu.
- Er sjálfstæður, samviskusamur og stundvís.
- Hefur góða tölvukunnáttu og góða íslenskukunnáttu.
- Er 20 ára eða eldri.
- Er reyklaus og getur framvísað hreinu sakavottorði.
Vinnustaðurinn Innnes
Innnes er eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins í matvöru og víni og leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini sína með gildin gleði og fagmennsku að leiðarljósi.
Boðið er upp á fyrirmyndar vinnuumhverfi þar sem boðið er upp á mötuneyti með heitum mat og ýmis fríðindi eins og heilsuræktarstyrk, samgöngustyrk, öflugt félagslíf og fleira. Innnes starfrækir vottað jafnlaunakerfi í samræmi við jafnréttis- og launastefnu fyrirtækisins og við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð kyni, uppruna o.s.frv.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí 2026.
Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningavef Innnes. Umsókn skal fylgja ferilskrá með mynd (CV) á Word- eða PDF-formi ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvers vegna þú ert rétti aðilinn í starfið.Nánari upplýsingar veitir Vigdís Ylfa Hreinsdóttir, sölustjóri, í tölvupósti [email protected]. Vinsamlegast athugið að ekki eru veittar upplýsingar í síma.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt5 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn7 dagar síðanOstur sem lyktar eins og „sviti og eftirsjá“
-
Markaðurinn1 dagur síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum




