Vertu memm

Frétt

Myndir frá árshátíð Klúbbs Matreiðslumeistara sem haldin var á Sigló

Birting:

þann

Árshátíð Klúbbs Matreiðslumeistara

Árshátíðargestir voru ánægðir með dvölina á Hótel Siglufirði

Árshátíð Klúbbs Matreiðslumeistara var haldin á Siglufirði, laugardaginn s.l. og var margt um manninn. Þéttskipuð dagskrá var hjá félagsmönnum þar sem aðalfundur var haldinn sama dag.

Ný stjórn KM var kosin fyrir tímabilið 2017-2018:

  • Björn Bragi Bragason, Forseti
  • Friðgeir Ingi Eiríksson, Varaforseti
  • Andreas Jacobsen, Gjaldkeri
  • Júlía Skarphéðinsdóttir, Meðstjórnandi
  • Logi Brynjarsson, Meðstjórnandi
  • Jóhann Sveinsson, Meðstjórnandi
  • Ragnar Marínó Kristjánsson, Meðstjórnandi
  • Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, Varamaður & ritari

Fyrri stjórn á tímabilinu 2016-2017 voru eftirfarandi:

  • Björn Bragi Bragason, Forseti
  • Friðgeir Ingi Eiríksson, Varaforseti
  • Andreas Jacobsen, Gjaldkeri & ritari
  • Ylfa Helgadóttir, Meðstjórnandi
  • Árni Þór Arnórsson, Meðstjórnandi
  • Jóhann Sveinsson, Meðstjórnandi
  • Örn Svarfdal, Meðstjórnandi
  • Friðgeir Ingi Eiríksson, Varamaður

Á meðan að félagsmenn funduðu fóru makar í skoðunarferð um Siglufjörð. Eftir aðalfundarslit fóru félagsmenn og makar og heimsóttu brugghúsið Segul 67.

Um kvöldið fór árshátíðin fram á veitingastaðnum Rauðku á Siglufirði þar sem Tómas Jórunnarsson matreiðslumaður ásamt Ungkokkum Íslands sáu um veisluna. Nánari umfjöllun um veisluna og Ungkokka Íslands verður birt síðar ásamt frétt um Orðu og laganefnd klúbbsins, en hún hafði í nógu að snúast á árshátíðinni.

Meðfylgjandi myndir tók Jón Kr. Friðgeirsson matreiðslumeistari.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið