Markaðurinn
Evogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
Bako Verslunartækni býður nú upp á Evogro ræktunarskápa, lausn sem gerir veitingastöðum og fageldhúsum kleift að rækta ferskar kryddjurtir, salat og örgrænmeti á staðnum, allt árið um kring. Evogro er breskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í hátæknilausnum fyrir ræktun innandyra.
Ræktunarskáparnir sameina vatnsræktun, sérhæfða LED lýsingu og snjalla stýringu til að skapa kjöraðstæður fyrir hverja plöntu.
Mikill sparnaður – frá plöntu beint á disk
Í stað þess að kryddjurtir, salat og örgrænmeti fari í gegnum flutning, geymslu og umbúðir er hægt að uppskera nákvæmlega það magn sem þarf hverju sinni, jafnvel rétt áður en rétturinn fer á diskinn.
Þar sem plönturnar eru ræktaðar á staðnum þarf ekki að velja yrki með langt geymsluþol í fyrirrúmi, þess í stað er hægt að leggja áherslu á bragð, ilm og gæði. Hráefnið fær að vaxa þar til þess er þörf og er síðan uppskorið ferskt.
Samkvæmt Evogro fara 30-50% af keyptum kryddjurtum og örgrænmeti á veitingastöðum í Bretlandi til spillis áður en hráefnið er nýtt. Með ræktun á staðnum má draga verulega úr þeirri sóun, lækka hráefniskostnað og nýta uppskeruna betur.
Á Íslandi, þar sem stór hluti fersks hráefnis er innfluttur, getur ávinningurinn orðið enn meiri með lægri kostnaði og minni matarsóun.
Yfir 120 tegundir til ræktunar
Evogro býður upp á yfir 120 tegundir af fræjum fyrir salat, kryddjurtir og örgrænmeti, eða microgreens, og hefur þróað yfir 300 mismunandi ræktunarlíkön fyrir ólíkar tegundir og vaxtarstig. Í sex hæða Evogro skápnum eru sex sjálfstæð ræktunarsvæði.
Það gerir mögulegt að rækta ólíkar tegundir og hafa plöntur á mismunandi vaxtarstigum í sama skápnum á sama tíma. Ræktunaraðstæður eru stilltar sérstaklega fyrir hverja tegund, meðal annars lýsing og vökvun. Ræktunartíminn er því mismunandi eftir því hvað er ræktað og á hvaða vaxtarstigi á að uppskera.
Snjöll ræktun allt árið
Skápurinn er nettengdur og notar skynjara og myndavélar til að fylgjast með ræktuninni. Með Evogro appinu er meðal annars hægt að fylgjast með framvindu, sjá uppskerudagatal og fá leiðbeiningar um umhirðu plantnanna.
Þar sem aðeins er uppskorið það sem þarf hverju sinni getur ræktun á staðnum einnig hjálpað til við að draga úr sóun á viðkvæmum ferskvörum. Evogro notar hringrásarvatnsræktun þar sem vatn og næringarefni eru endurnýtt.
Evogro er þegar í notkun hjá þekktum veitingastöðum og matreiðslumönnum erlendis, meðal annars á The Ritz London, Hide og Roganic Hong Kong.
Ræktunarskápurinn þarf heldur ekki að vera falinn inni í eldhúsi. Með vandaðri hönnun, glerhurð og sýnilegri ræktun getur hann orðið hluti af upplifun gesta og sýnt hráefnið bókstaflega vaxa á staðnum.
Evogro ræktunarskáparnir eru nýjung í vöruframboði Bako Verslunartækni og hægt er að sjá jurtirnar spretta fram í sýningarsalnum, Draghálsi 22 eða fræðast meira um skápinn í vefverslun á bvt.is
-
Keppni3 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Frétt5 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun19 klukkustundir síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“







