Markaðurinn
Sjáðu myndirnar: Tæplega 200 gestir mættu á morgunverðarveislu Innnes
Við hjá Innnes vorum með opið hús í dag 19. mars milli klukkan 9 og 12 hér í Korngörðum 3, Reykjavík.
Okkur langaði að kynna þær lausnir sem við erum með í boði fyrir morgunmatinn.
Við erum með gríðarlega fjölbreytt úrval af vörum og spennandi nýjungum sem henta jafnt hótelum, gistiheimilum, veitingastöðum og stofnunum sem vilja bjóða upp á aðlaðandi og hagkvæmar morgunverðarlausnir.
Það sem var meðal annars á boðstólnum var:
Brauð, croissant, vöfflur og sætabrauð í miklu úrvali
Hrærð egg, beikon og bakaðar baunir
Ostar, álegg, sneidd egg og sultur
Jógúrt og morgunkorn
Ferskir ávextir og grænmeti
Kaffi, safar og freyðivín
Gestum gafst tækifæri á að smakka vörur, kynna sér nýjungar og ræða við söluteymi Innnes um lausnir sem henta hverjum rekstri. Við viljum einnig þakka Bako Verslunartækni sem lánaði okkur glæsilegan búnað sem er einmitt tilvalinn undir morgunverðinn.
Við erum gríðarlega þakklát fyrir alla þá sem kíktu á okkur og erum í skýjunum með frábæra mætingu, vel á annað hundrað manns mættu og gæddu sér á dýrindis veitingum sem voru í boði.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn2 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni3 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins














