Viðtöl, örfréttir & frumraun
Hákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS

Hákon Bragi Valgeirsson matreiðslumeistari hefur tekið við nýju starfi hjá ISS Facility Services í Þrándheimi.
Hákon Bragi Valgeirsson matreiðslumeistari hefur selt allan eignarhlut sinn í Fæby Bryggeri í Verdal í Noregi og hafið störf sem rekstrarstjóri mötuneytis hjá ISS Facility Services í Þrándheimi.
Hákon hóf að vinna að uppbyggingu Fæby Bryggeri árið 2018 en staðurinn opnaði dyr sínar árið 2019. Fyrstu árin starfaði hann sem yfirmatreiðslumaður en tók við starfi framkvæmdastjóra um árið 2021. Hann hélt þó ávallt nánum tengslum við eldhúsið og vann þétt með yfirmatreiðslumönnum, þjónum, matreiðslumönnum og nemum.
„Það var virkilega gefandi og áhugavert að gegna ólíkum hlutverkum innan fyrirtækisins. Það var einnig mjög skemmtilegt að taka þátt í uppbyggingu fyrirtækis sem við gátum stýrt í þá átt sem við vildum,“
sagði Hákon í samtali við Veitingageirann.is.
Margt stendur upp úr
Hákon segir ótal góðar minningar tengjast árunum hjá Fæby. Sérstaklega standi þó upp úr samstarf fyrirtækisins við yfirvöld um að aðstoða fólk sem hafði af ýmsum ástæðum staðið utan vinnumarkaðarins.
„Í dag starfa þrír einstaklingar hjá fyrirtækinu sem við höfum aðstoðað við að komast aftur á réttan kjöl og öðlast starfsreynslu. Tveir þeirra hafa lokið sveinsprófi í matreiðslu,“
sagði Hákon.
Hann segir jafnframt ánægjulegt að fyrirtækið hafi skilað hagnaði frá fyrsta rekstrarári, þrátt fyrir að vera staðsett langt frá alfaraleið á kartöflubýli og nánast úti á miðjum kartöfluakri.
Árin hjá Fæby höfðu einnig persónulega þýðingu fyrir Hákon þar sem allar þrjár dætur hans fengu þar sína fyrstu starfsreynslu. Þá hlaut fyrirtækið ýmsar viðurkenningar, meðal annars sem fyrirtæki ársins á svæðinu og fyrir markaðsstarf sitt.
Hákon segist einnig hafa lært mikið af Viggo Iversen, stjórnarformanni Fæby Bryggeri, sem hafi stýrt fyrirtækinu með glæsibrag í gegnum árin.
Allur eignarhluturinn seldur
Hákon staðfestir að allur eignarhlutur hans í Fæby Bryggeri hafi verið seldur. Aðrir eigendur fyrirtækisins hafi einnig ákveðið að selja sína hluti á sama tíma.
„Fyrirtækið er nú að fullu í eigu ábúenda á kartöflubýlinu Fæby gård, sem halda rekstrinum áfram með nýju starfsfólki og nýjum áherslum,“
sagði Hákon.
Ákvörðunin um að selja og hverfa frá fyrirtækinu var að hans sögn ekki sérstaklega erfið, þótt mikil vinna og orka hafi farið í uppbygginguna.
„Vinna er alltaf vinna fyrir mér en fjölskyldan skiptir mestu máli. Þegar allar dætur mínar voru að flytja til Þrándheims til náms var því bara að bretta upp ermarnar, koma söluferlinu af stað og flytja.“
Hann segist einnig hafa haft að leiðarljósi ráð sem Pétur B. Pétursson, fyrrverandi kennari hans í meistaraskólanum, gaf nemendum sínum. Eftir sjö til átta ár í sama starfi geti farið að halla undan frumkvæði og drifkrafti og þá sé tími kominn til að takast á við nýjar áskoranir.
Opnar nýtt mötuneyti í Þrándheimi
Í nýja starfinu hjá ISS Facility Services mun Hákon bera ábyrgð á opnun og rekstri nýs mötuneytis á Trondheim Torg. Um er að ræða eitt stærsta mötuneyti borgarinnar en áætlað er að þar borði um 450 til 600 manns á dag.
Mötuneytið verður fyrir starfsfólk Þrándheimsborgar en um 1.400 starfsmenn hafa þar aðstöðu og skrifstofur. Gert er ráð fyrir sjö til níu stöðugildum í rekstrinum til að byrja með, þar af fjórum til fimm faglærðum matreiðslumönnum.
„Fyrsta verkefnið er að opna mötuneytið í lok október og koma rekstrinum vel af stað. Jafnframt þarf að þróa matseðla, byggja upp starfsmannahald og halda utan um allan daglegan rekstur,“
sagði Hákon.
Áhersla verður lögð á hádegisverð með vel útilátinni salatstöð, tveimur heitum réttum og tveimur súpum á hverjum degi, auk brauðs og áleggs. Þá verður einnig boðið upp á veitingar á fundum, veislumat og aðra veisluþjónustu.
Hákon segir það hafa heillað sig að fá tækifæri til að takast á við nýjar áskoranir og kynnast alþjóðlegu fyrirtæki á borð við ISS.
„Ráðningarferlið var virkilega áhugavert og stjórnendur mínir og samstarfsfólk virðast vera gott og hæfileikaríkt fagfólk,“
sagði hann.
Heldur matarvögnunum áfram
Samhliða nýja starfinu hyggst Hákon halda áfram rekstri matarvagna sinna og þróa Trøndelag Streetfood áfram. Hann vinnur einnig að stofnun nýs fyrirtækis sem mun bera nafnið Trøndersk festivalmat.
Stefnt er að því að fyrirtækið verði á matarhátíðum og öðrum viðburðum víða um Mið Noreg og bjóði upp á götumat úr staðbundnu gæðahráefni.
Hákon bjó í Þrándheimi þegar hann flutti fyrst frá Íslandi árið 2005 og segir gott að vera kominn aftur til borgarinnar.
„Þessi nýi kafli leggst virkilega vel í mig. Fram undan eru nýir möguleikar og nýjar áskoranir og allar dyr opnar fyrir mann sem nálgast fimmtugt en er enn unglingur í anda.
Líkt og Sigur Rós orðaði það með fyrstu tveimur plötum sínum, Von og Ágætis byrjun, hef ég sömu væntingar til þessa nýja kafla,“
sagði Hákon að lokum.
Myndir: úr einkasafni
-
Frétt4 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Keppni2 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Markaðurinn1 dagur síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?








