Markaðurinn
Lalladallarnir frá DECA fást hjá Ísco
Ísco í Hafnarfirði selur plastdósir og fötur frá belgíska framleiðandanum DECA. Í eldhúsum og hjá matvælaframleiðendum ganga þær yfirleitt undir nafninu lalladallar. Dallarnir eru úr PP-plasti og lokast með innsiglisloki, svo það sést strax ef dallur hefur verið opnaður.
Úrvalið er mikið. Minnstu dallarnir taka sósur og dressingar, þeir meðalstóru salöt, súpur og tilbúna rétti, og stærri dallar og fötur nýtast í framleiðslu og á lager.
Dallarnir fást kringlóttir, ferkantaðir og ílangir. Þeir þola bæði örbylgjuofn og uppþvottavél og hægt er að fá frystiþolnar útgáfur. Plastið er endurvinnanlegt.
Ísco býður einnig upp á sérmerkingu. Hægt er að prenta á dallana eða steypa merkimiðann beint inn í plastið þegar um stærri pantanir er að ræða.
Dallana má skoða á isco.is og í sýningarsal Ísco að Steinhellu 17 í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar fást í síma 562 1100.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanArnór Ingi og fjölskylda opna Laut í Norræna húsinu – sjáðu matseðilinn hér
-
Markaðurinn4 dagar síðanVel heppnaður haustfagnaður hjá John Lindsay
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanKokkakonur boða til stofnfundar í Bryggjuhúsinu
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi hæfileikar verðlaunaðir í Eftirrétti ársins og Konfektmola ársins 2026
-
Keppni2 dagar síðanLisa Dagnäs valin konditor ársins í Svíþjóð 2026
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFramtíðarkokkar láta ljós sitt skína
-
Frétt3 dagar síðanHraðlestin kveður Hverfisgötu eftir 23 ár
-
Markaðurinn5 dagar síðanÞað sem getur vantað í ferilskrá frábærs umsækjanda






