Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Úrvalslið veitingageirans fagnaði opnun þriggja nýrra veitingastaða á Keflavíkurflugvelli – Myndir

Birting:

þann

Úrvalslið veitingageirans fagnaði opnun þriggja nýrra veitingastaða á Keflavíkurflugvelli

Einar Örn Einarsson, Haukur chef og Hrefna Sætran

Nú á dögunum lagði úrvalslið veitingageirans leið sína upp á Keflavíkurflugvöll (KEF) til að fagna þar opnun þriggja nýrra veitingastaða.  Veitingasvæðið Aðalstræti sem er rekið af Lagardère Travel Retail er nú opið í brottfararsalnum þar sem nýju veitingastaðirnir eru; hamborgarastaðurinn Yuzu, ítalski veitingastaðurinn La Trattoria og mexíkóski matstaðurinn Zócalo.

Úrvalslið veitingageirans fagnaði opnun þriggja nýrra veitingastaða á Keflavíkurflugvelli

Guðmundur Stephensen og Holger Gísli Gíslason

Nýja veitingasvæðið, Aðalstræti, er hluti af opnun austurálmunnar sem felur í sér 30% stækkun flugstöðvarinnar.

Margt var um manninn og var ekki þverfótað fyrir stjörnum úr veitingageiranum sem gæddu sér á gómsætum réttum úr smiðju Zócalo, La Trattoria og Yuzu og nutu fljótandi veiga. Feykilega góð stemning var í boðinu og DJ Danni Deluxe lék ljúfa tóna fyrir gesti.

Úrvalslið veitingageirans fagnaði opnun þriggja nýrra veitingastaða á Keflavíkurflugvelli

Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir

„Aðalstræti er sérhannað fyrir flugvöllinn með hraða, gæði og fjölbreytni í fyrirrúmi. Allir matseðlar eru aðlagaðir flugstöðinni með vinsælum réttum sem eru hraðir í afgreiðslu.

Boðið er upp á sérstaka morgunverðarétti og barnarétti og jafnframt bjóða allir staðirnir val um að borða á staðnum eða taka með sér í flugferðina. Zócalo, La Trattoria og Yuzu eru allt frábærir veitingastaðir með sín sérkenni og bæta enn frekar úrvalið í flugstöðinni.“

Sagði Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir deildarstjóri verslunar og veitinga hjá KEF.

Íslenska hönnunarstofan HAF Studio hafði veg og vanda að hönnun svæðisins og Krot & Krass hannaði vegglistaverk sem prýða veggi þess. Áhersla var lögð á að skapa heildrænt rými sem heldur vel um gesti og stemningu eins og gerist best í miðborg Reykjavíkur.

Úrvalslið veitingageirans fagnaði opnun þriggja nýrra veitingastaða á Keflavíkurflugvelli

Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir

„Við vildum skapa hlýlega og afslappaða miðbæjarstemmingu sem landsmenn þekkja meðal annars úr mathöllum sem opnað hafa víðs vegar um borgina undanfarið og höfðum það að leiðarljósi í allri hönnun.

Á sama tíma og við leituðumst eftir því að vera með samræmt útlit í innréttingunum vildum við þó leyfa hverjum veitingastað að halda í sín sérkenni.

Að mínu mati heppnaðist verkefnið virkilega vel enda var einstakt tækifæri að fá að hanna umhverfi fyrir þessa flottu veitingastaði og virkilega gaman að fá að fagna þessum áfanga með fólkinu á bak við veitingastaðina,“

segir Hafsteinn Júlíusson, eigandi HAF Studio.

Myndir: kefairport.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið