Markaðurinn
Fastus auglýsir eftir söluráðgjafa stóreldhúsa
Fastus óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í hóp söluráðgjafa Fastus lausna. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem reynir meðal annars á þekkingu á stóreldhúsum og veitingaþjónustu, þjónustulund og lausnamiðað hugarfar.
Söluráðgjafar stóreldhúsa hjá Fastus sérhæfa sig í sölu á vörum og lausnum fyrir stóreldhús auk hönnunar eldhúsrýma. Leitað er að einstaklingi sem hefur þjónustumiðað viðhorf og víðtæka þekkingu á stóreldhúsum og veitingaþjónustu.
Helstu verkefni
- Fagleg ráðgjöf og sala á vörum og lausnum tengdum stóreldhúsum
- Hönnun stóreldhúsa
- Að styrkja og efla samskipti við viðskiptavini
- Öflun nýrra viðskiptatækifæra, tilboðsgerð og eftirfylgni með sölutækifærum
- Þátttaka í þróun og eflingu vöruframboðs
- Samskipti við erlenda og innlenda birgja
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfnikröfur
Menntun og reynsla á sviði matreiðslu er skilyrði og reynsla af sölu er kostur. Þá er lögð áhersla á ríka þjónustulund, jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfni.
Umsækjandi þarf jafnframt að búa yfir skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt góðri tölvukunnáttu og góðri íslensku- og enskukunnáttu. Reynsla af teikniforritum er kostur.
Um Fastus
Fastus er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreytt vöru- og lausnaframboð fyrir fyrirtæki og stofnanir, meðal annars í veitinga- og ferðaþjónustu og heilbrigðisrekstri. Hjá fyrirtækinu starfar samstilltur hópur fagfólks og lögð er áhersla á framúrskarandi þjónustu og lausnir sem mæta þörfum viðskiptavina.
Fastus hefur hlotið jafnlaunavottun og hjá fyrirtækinu starfar öflugt starfsmannafélag.
Umsóknarfrestur er til og með 24. september 2026.
Umsókn skal fylla út á ráðningarvef Intellecta og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og þeirri hæfni sem nýtist í starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran og Vilborg Þórðardóttir hjá Intellecta.
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði




