Viðtöl, örfréttir & frumraun
Breskir sigurvegarar í fish and chips-keppni heillaðir af íslenskum sjávarútvegi

Jóhann Issi Hallgrímsson og Hjördís Guðmundsdóttir hjá Issi fish & chip á Fitjum í Njarðvík tóku vel á móti breska hópnum og buðu upp á íslenska útgáfu af fish and chips.
Í byrjun júní stóð Íslandsstofa fyrir ferð til Íslands fyrir vinningshafa úr National Fish & Chip Awards 2026, hagaðila og valda fjölmiðla. Gestirnir upplifðu meðal annars sjómannadagshelgina á Patreksfirði, fóru í áhugaverðar heimsóknir í fyrirtæki og fengu sterka innsýn í hversu samofinn sjávarútvegurinn er lífi og starfi fólks í sjávarbyggðum landsins.
Ferðin var farin á vegum Seafood from Iceland, markaðsverkefnis sem Íslandsstofa vinnur að í samstarfi við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og sjávarútvegsfyrirtæki um land allt.
Bresku verðlaunahafarnir reka framúrskarandi fish and chips-staði víðsvegar um Bretland og þar spilar íslenskt hráefni stórt hlutverk. Íslenskir framleiðendur á sjófrystum fiski voru heimsóttir, bæði í Grindavík (Þorbjörn og Grindavík Seafood) og Ísafirði (Hraðfrystihúsið Gunnvör) þar sem hópurinn fékk skoðunarferð í frystiskipið Júlíus Geirmundsson ÍS-270.
Hópurinn dvaldi lengstum á Vestfjörðum þar sem einstök náttúra og fallegt veður settu svip sinn á ferðina, en að mati Bretanna voru hlýjar móttökur heimamanna það sem stóð upp úr.
Dagskrá sjómannadagsins á Patreksfirði var viðburðarík. Þar fór hópurinn í sögugöngu um bæinn, áttu kaffispjall með sjómanni, fóru í hátíðarsiglingu á Núpi BA-69 og tóku þátt í kappróðri. Um kvöldið var haldin grillveisla í heimahúsi þar sem meðal annars var grillaður þorskur sem hópurinn hafði sjálfur veitt á sjóstöng. Kvöldið endaði síðan á glæsilegu sjómannadagsballi í félagsheimili Patreksfjarðar þar sem allir skemmtu sér konunglega.
Þá eru ótaldar fjölmargar heimsóknir, þar á meðal í Kerecis á Ísafirði og Nordic Fish Leather á Tálknafirði, þar sem fiskroð er notað annars vegar til lækninga á sárum og hins vegar framleiðslu á fiskleðri. Hópurinn heimsótti einnig náttúruperlur á Vestfjörðum á borð við Dynjanda, Látrabjarg og Bolafjall.
Gestirnir fengu að sjálfsögðu að smakka íslenska útgáfu af þjóðarrétti Breta fish and chips, bæði hjá Fisherman á Suðureyri þar sem hópurinn fór í matargöngu og hjá Issi fish & chip á Fitjum í Njarðvík. Það var ekki annað að heyra á Bretunum að Íslendingar kunni ýmislegt fyrir sér þegar kemur að þessum sígilda rétti.
Andrew Crook, forseti bresku samtakanna National Federation of Fish Friers, var með hópnum og naut hverjar mínútu í ferðinni:
„Gestirnir okkar frá Bretlandi áttu sannarlega ógleymanlegar stundir á Vestfjörðum. Við sáum vel hvernig Íslendingar nýta hráefnið úr sjónum, ekki aðeins sem prótein á disk neytenda heldur einnig í lækningarvörur og framleiðslu á leðri.
Þarna er verið að skapa aukin verðmæti. Hvar sem við komum fengum við einstakar móttökur og Íslendingar skilja mikilvægi þess að varðveita þessa mikilvægu auðlind sem fiskistofnarnir eru.
Þá var sérlega gaman að sjá hversu stórt hlutverk fiskurinn spilar í daglegu lífi, þarna er þorskurinn fólkinu allt.“
Erlendu gestirnir eru nú komnir til síns heima með góðar minningar frá Íslandi, þar sem íslenski fiskurinn, gestrisna fólkið og einstök náttúra voru í aðalhlutverki.
Hér fyrir neðan má finna tengla á bresku fish and chips verðlaunastaðina.
The Scrap Box (1. sæti Takeaway of the Year)
Trenchers of Whitby (1. sæti Restaurant of the Year)
Noah’s (2. sæti Restaurant of the Year)
Whitby’s Restaurant & Take Away (3. sæti Restaurant of the Year)
Myndir: islandsstofa.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn2 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
-
Frétt6 dagar síðanBapao beef innkallað vegna mögulegrar örverumengunar
-
Markaðurinn3 dagar síðanFagfélögin loka skrifstofu sinni í tvær vikur vegna sumarleyfa








