Markaðurinn
Ísey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði
Ísey skyr heldur áfram að gleðja skyrunnendur landsins og sækir nú innblástur í væntanlegan sólmyrkva á Íslandi sem beðið er með mikilli eftirvæntingu.
Almyrkvi á sólu er sjaldgæf sjón og einstök upplifun og sameinar nýtt Ísey skyr því íslenska matarhefð og spennandi bragðupplifun.
Sólmyrkvaskyrið er með einstöku kexbragði sem margir þekkja sem cookies and cream og óvenjulegur litur skyrsins skapar sjónræna upplifun á sama tíma.
Sólmyrkvaskyrið er framleitt í takmörkuðu magni fram að sólmyrkvanum og er ætlað að höfða bæði til Íslendinga og ferðamanna sem vilja smakka eitthvað einstakt frá Íslandi. Umbúðirnar eru hannaðar sérstaklega með sólmyrkvaþema í huga þar sem gylltur hringur sólarmyrkvans umvefur Ísey skyr og ætti dósin því ekki að fara framhjá neinum.
Sala hefst í næstu viku.
-
Markaðurinn3 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn3 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Frétt7 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt7 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt6 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun12 klukkustundir síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur



