Markaðurinn
Skyrunnendur fá tvær nýjar ástæður til að gleðjast
Ísey skyr Púff hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár enda bæði létt og loftkennt og einstaklega bragðgott.
Púff er unnið með sérstakri framleiðsluaðferð þar sem lofti er dælt í skyrið svo það blæs upp og áferðin verður þannig frábrugðin þeirri á hefðbundnu skyri og kemur skemmtilega á óvart.
Tvær nýjar bragðtegundir koma nú á markað á sama tíma og ættu skyrunnendur um land allt því að setja sig í startholurnar.
Það er einstaklega ánægjulegt að geta boðið upp á tvær spennandi nýjungar nú í sumar en annars vegar er það Ísey skyr Púff með kirsuberjum og súkkulaði og hins vegar Ísey skyr Púff með ástaraldin.
Báðar tegundir eiga það sameiginlegt að vera bæði léttar í munni og maga en eins og annað Ísey skyr eru þessar nýjungar laktósalausar.
Ísey skyr Púff hentar fullkomlega sem nesti, millimál eða létt kvöldsnarl og svo má mylja yfir dósina gott kex til að búa til einfaldan og sniðugan sumareftirrétt eða nota sem fyllingu í ljúffenga tertu. Við mælum með að skyrunnendur prófi þessar bragðgóðu nýjungar og njóti hvar sem er og hvenær sem er.
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn2 dagar síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember





