Markaðurinn
Nýtt KEA skyr sækir innblástur í einn þekktasta eftirrétt heims
Nú er komin á markað ný og spennandi sérútgáfa af KEA skyri sem verður aðeins á markaði í takmarkaðan tíma. Nýtt KEA skyr með hindberjum og panna cotta er líkt og aðrar KEA skyr bragðtegundir próteinríkt, laktósalaust og einstaklega bragðgott.
„Sérútgáfurnar okkar vekja alltaf mikla lukku enda Íslendingar upp til hópa nýjungagjarnir og miklir skyrunnendur og höfum við lagt mikla áherslu á að setja reglulega á markað nýjar og spennandi bragðtegundir,“
segir Gréta Björg Jakobsdóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri hjá Mjólkursamsölunni.
„Nýja sérútgáfan með hindberja panna cotta sameinar hefðbundið hindberjabragð og klassíska eftirréttinn panna cotta svo úr verður himnesk blanda.“
Samkvæmt Grétu er Mjólkursamsalan fullviss um að nýja skyrið muni falla neytendum vel í geð. Hún segir áferð þess bæði silkimjúka og rjómakennda, auk þess sem bragðið sé í góðu jafnvægi. Vonast fyrirtækið til að landsmenn prófi nýju sérútgáfuna þegar hún kemur í verslanir.
Skoða nánar á www.ms.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni3 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins





