Viðtöl, örfréttir & frumraun
Pítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
GOTT í Vestmannaeyjum hefur opnað aftur eftir umfangsmiklar breytingar á staðnum og uppfærðan matseðil.
Í samtali við veitingageirinn.is segir Berglind Sigmarsdóttir að breytingarnar hafi meðal annars falið í sér lokun Pítsugerðarinnar og flutning á ofni yfir á GOTT.
„Við lokuðum Pítsugerðinni og færðum ofninn yfir á GOTT. Svo nú er hægt að fá eldbakaðar pítsur einnig á GOTT. Við að koma ofninum fyrir þurfti að gera töluverðar breytingar á salnum,“
segir Berglind.
Um er að ræða ítalskan steinofn sem vegur rúmlega tvö tonn og kallaði uppsetning hans á verulegar framkvæmdir inni í sal veitingastaðarins. Eigendur staðarins, yfirkokkurinn Sigurður Gíslason og Berglind, hafa því haft í nógu að snúast undanfarnar vikur við að aðlaga rýmið að nýjum áherslum.
Með breytingunum hefur matseðillinn einnig tekið nokkrum stakkaskiptum. Nýir réttir hafa bæst við í bland við þá klassísku, en áfram er lögð rík áhersla á handverk og ferskleika. Á GOTT er pasta gert frá grunni, ís framleiddur á staðnum og allar sósur, súpur og kökur eru gerðar frá grunni í eldhúsinu.
Þá sækja kokkar staðarins ferskan fisk beint af fiskmarkaði á hverjum morgni, sem endar í vönduðu hráefnisvali. Með þessum breytingum leitast GOTT við að bæta upplifun gesta.
Myndir: úr einkasafni
-
Markaðurinn3 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni4 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn3 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt5 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn
-
Frétt1 dagur síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað













