Markaðurinn
Supermeals tekur næsta skref í sjálfvirkni – frá pöntun til pökkunar og afhendingar
Íslenska hugbúnaðarlausnin Supermeals heldur áfram að þróast og hefur á síðustu misserum bætt við fjölda nýrra eiginleika sem miða að því að einfalda daglegan rekstur mötuneyta, fyrirtækja og veitingastaða.
Meðal stærstu nýjunganna eru sjálfvirk pökkun máltíða í kassa, ný og öflugri miðaprentun, klippikort sem hægt er að vista í símaveski og kiosk-sjálfsafgreiðslulausn sem gerir afhendingu og skráningu máltíða hraðari.
Kerfið sér um að raða máltíðunum í kassana
Ein stærsta nýjungin snýr að pökkun og dreifingu máltíða. Supermeals getur nú sjálfkrafa reiknað út hvernig máltíðum dagsins er best raðað niður í kassa út frá fjölda máltíða sem eiga að fara í hvern kassa.
Kerfið leitast við að hámarka nýtingu kassanna og lágmarka óþarfa skiptingu máltíða. Kaldir réttir eru jafnframt aðskildir frá heitum réttum og fara sjálfkrafa í sérmerkta kalda kassa.
Þegar pökkun er tilbúin er hægt að prenta kassamiða beint úr Supermeals. Á miðunum kemur meðal annars fram innihald hvers kassa og heildarfjöldi kassa.
Einfaldari miðaprentun
Samhliða þessu hefur miðaprentun í Supermeals verið endurhönnuð. Nú er hægt að velja á milli fjögurra tegunda miða, yfirlitsmiða, leiðamiða, fyrirtækjamiða og kassamiða og prenta eina eða fleiri tegundir í einu.
Kerfið man einnig hvaða miðar voru prentaðir síðast og hægt er að prenta alla nauðsynlega miða með einum smelli. Prentunin hefur jafnframt verið löguð að stöðluðum 4 × 6 tommu Zebra-miðum til að nýta rúlluna betur og draga úr óþarfa sóun.
Klippikortið komið í símann
Klippikort eru einnig komin inn í Supermeals. Veitingastaðir og mötuneyti geta búið til stafræn klippikort, sent þau beint til viðskiptavina í tölvupósti og fylgst með notkun þeirra í rauntíma.
Viðskiptavinurinn getur síðan vistað klippikortið í símaveskinu sínu og haft það alltaf við höndina. Þannig þarf ekki lengur að treysta á útprentuð kort sem gleymast eða týnast.
Rekstraraðilar fá jafnframt yfirsýn yfir fjölda virkra korta, útstandandi máltíðir og heildarfjölda máltíða sem hafa verið gefnar út á klippikort.
Kiosk-lausnin komin í notkun
Kiosk-sjálfsafgreiðslulausn Supermeals hefur einnig tekið stórt skref fram á við. Hún er hugsuð fyrir mötuneyti og fyrirtæki þar sem mikill fjöldi fólks þarf að komast hratt í gegnum afgreiðslu á stuttum tíma.
Notendur geta auðkennt sig með QR-kóða, NFC, starfsmannanúmeri eða kennitölu. Einnig er hægt að vista auðkenningu í símaveski og nota símann við komu.
Eftir auðkenningu birtist pöntun dagsins á skjánum. Ef kiosk-pantanir eru virkjaðar er jafnframt hægt að stofna nýja pöntun eða bæta við hana beint á staðnum.
Markmiðið er einfalt: minni bið, minni handavinna og hraðari afgreiðsla þegar mest er að gera.
Kerfið lætur viðskiptavininn vita þegar eitthvað breytist
Supermeals hefur jafnframt bætt við sjálfvirkum tilkynningum þegar réttur er fjarlægður af matseðli eftir að pantanir hafa borist.
Þeir viðskiptavinir sem höfðu pantað réttinn fá sjálfkrafa tölvupóst þar sem fram kemur hvaða réttur var fjarlægður og hvaða dag matseðillinn á við. Með þessu er hægt að draga úr misskilningi og fyrirspurnum til starfsfólks þegar breytingar verða á matseðli.
Ein innskráning fyrir öll fyrirtæki
Innskráning í Supermeals hefur einnig verið færð yfir í miðlægt innskráningarkerfi. Notendur sem hafa aðgang að fleiri en einu fyrirtæki eða teymi þurfa því ekki lengur mismunandi innskráningar.
Eftir innskráningu velja þeir einfaldlega það teymi sem þeir vilja vinna með og geta síðan skipt á milli þeirra eftir þörfum.
Næst á dagskrá: sjálfvirkar áminningar
Þróun Supermeals heldur áfram og á teikniborðinu eru meðal annars sjálfvirkar áminningar með SMS og tölvupósti.
Markmiðið er að Supermeals taki sífellt meira af þeirri endurteknu handavinnu sem fylgir rekstri mötuneyta og veitingastaða – allt frá því að viðskiptavinur pantar máltíð og þar til hún hefur verið pökkuð, merkt og afhent.
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanNÆS lokar sumrinu með fullbókuðu kvöldi í London
-
Keppni3 dagar síðanManuel Schembri og Oddný Ingólfsdóttir keppa fyrir Íslands hönd
-
Keppni7 dagar síðanFremstu vínþjónar Norðurlandanna keppa í Reykjavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSöfnuðu rúmlega þremur milljónum fyrir fjölskyldur í Nepal
-
Frétt4 dagar síðanSkreið frá Íslandi í sviðsljósinu í Tórínó
-
Markaðurinn4 dagar síðanSilkimjúk humarbisque fyrir sælkera
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanBragð af Loire-dalnum á Matur & Drykk
-
Frétt2 dagar síðanRetreat við Bláa Lónið eina íslenska hótelið með tvo Michelin-lykla




