Markaðurinn
SuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum
SuperMeals heldur áfram að þróa lausnir sem einfalda rekstur veitingastaða og bæta upplifun viðskiptavina. Undanfarið hefur verið unnið markvisst að nýjum eiginleikum sem styðja við sjálfvirkni, hraðari afgreiðslu og aukin þægindi fyrir bæði starfsfólk og gesti.
Meðal helstu nýjunga er að kiosk-lausn SuperMeals er nú tilbúin til notkunar. Lausnin gerir viðskiptavinum kleift að panta sjálfir í snertiskjám, sem styttir biðraðir, eykur afköst og bætir upplifun gesta á álagstímum. Kiosk-lausnin er samþætt við aðra virkni kerfisins og fellur því eðlilega inn í daglegan rekstur staða sem nota SuperMeals.
Jafnframt er NFC-virkni komin til sögunnar sem opnar á hraðari og einfaldari samskipti við viðskiptavini. Með NFC-tækni verður auðveldara að tengja saman stafrænar lausnir og upplifun gesta með örfáum snertingum.
Þá er Google Wallet og NFC-samþætting SuperMeals tilbúin og hefur þegar hlotið samþykki frá Google. Jafnframt er beðið eftir endanlegu samþykki frá Apple fyrir Apple Wallet-samþættingu. Markmiðið er að gera viðskiptavinum kleift að vista stafræn vildar-/klippikort, afsláttarkjör, tilboð og aðrar upplýsingar beint í síma sínum. Með þeirri þróun verður enn einfaldara fyrir veitingastaði að halda sambandi við viðskiptavini og byggja upp langtímatryggð.
Frá upphafi hefur markmið SuperMeals verið að þróa lausnir sem einfalda rekstur veitingastaða án þess að auka flækjustig. Nýju eiginleikarnir eru enn eitt skrefið í þeirri vegferð og undirstrika áherslu fyrirtækisins á nýsköpun, sjálfvirkni og betri þjónustu.
Á næstu misserum verða fleiri nýjungar kynntar sem byggja áfram á þeirri sýn að gera stafrænan rekstur veitingastaða einfaldari, skilvirkari og arðbærari.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn1 dagur síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Frétt6 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun9 klukkustundir síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Markaðurinn1 dagur síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði




