Markaðurinn
Klassískar kjúklingabringur í rjómasósu sem slá í gegn
Ofnbakað grænmeti, kjúklingur og djúsí rjómasósa er klassík. Hér var ég að prófa að nota rjómaost með svörtum pipar og útkoman var algjörlega dásamleg.
Innihald
4 skammtar
700 g kjúklingabringur (3-4 stk. eftir stærð)
200 g rjómaostur með svörtum pipar frá MS
500 ml rjómi frá Gott í matinn
3 stk. hvítlauksrif
1 msk. púðursykur
1 msk. soyasósa
1 msk. sítrónusafi
salt, pipar og hvítlauksduft
ólífuolía og smjör til steikingar
Meðlæti
ofnbakað grænmeti eftir smekk
Skref 1
- Skerið niður það rótargrænmeti sem ykkur þykir gott, setjið vel af ólífuolíu og kryddum yfir.
- Setjið inn í ofn við 190°C í um 40 mínútur.
Skref 2
- Skerið því næst bringurnar langsum í tvo hluta.
- Steikið þær upp úr blöndu af smjöri og ólífuolíu og brúnið vel allar hliðar, klárið síðan að elda þær með grænmetinu í ofninum í 15-20 mínútur.
Skref 3
- Notið sömu pönnu til að steikja hvítlauksrifin, bætið smá olíu og smjöri fyrst á pönnuna.
- Hellið þá rjóma og rjómaosti yfir og pískið þar til kekkjalaus sósa hefur myndast.
- Bragðbætið með púðursykri, soyasósu, sítrónusafa og kryddum.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir – gottimatinn.is
-
Markaðurinn2 dagar síðanPierre Koffmann heimsótti Finnsson í Kringlunni – Myndaveisla
-
Keppni5 dagar síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanReynir Grétarsson opnar Dinner á LYST á Akureyri – „Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu.“
-
Markaðurinn5 dagar síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie
-
Markaðurinn2 dagar síðanSumarið er tíminn fyrir ís – Myndir og myndbönd frá ísnámskeiði Fabbri og ÓJ&K – ÍSAM
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýtt vörumerki hjá Nathan: Arco
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanÞessi vefja með grillosti er fullkomin fyrir léttan kvöldmat




