RVK BBQ Festival fer fram við Kolaportið dagana 30. og 31. maí, en um er að ræða fyrstu sérhæfðu BBQ matarhátíð sinnar tegundar á Íslandi.
Hátíðin sækir innblástur til viðburða á
Upplýsingar um viðburð
RVK BBQ Festival fer fram við Kolaportið dagana 30. og 31. maí, en um er að ræða fyrstu sérhæfðu BBQ matarhátíð sinnar tegundar á Íslandi.
Hátíðin sækir innblástur til viðburða á borð við Meatopia í London og stórra BBQ-hátíða í Bandaríkjunum, en lögð er áhersla á íslenskt hráefni og nálgun.
Hátíðin verður haldin bæði utandyra og innandyra. Á útisvæðinu norðan Kolaportsins munu bestu grillarar landsins taka til hendinni, á meðan inni verður veitingasvæði, BBQ-matarmarkaður og keppt um titilinn Grillmeistari Íslands 2026.
Opnunartímar eru laugardaginn 30. maí frá klukkan 12:00 til 21:00 og sunnudaginn 31. maí frá klukkan 12:00 til 18:00.
Viðburðurinn er opinn öllum og er ætlað að höfða jafnt til fjölskyldna sem BBQ-áhugafólks og þeirra sem vilja einfaldlega njóta góðs matar og stemningar við sjávarsíðuna.
Barþjónaklúbbur Íslands ætlar að taka á móti sumrinu með sumarpartýi á Petersen Svítunni þriðjudaginn 9. júní næstkomandi. Viðburðurinn hefst klukkan 17 og lofar klúbburinn kvöldi fullt af stemningu, góðum drykkjum
Upplýsingar um viðburð
Barþjónaklúbbur Íslands ætlar að taka á móti sumrinu með sumarpartýi á Petersen Svítunni þriðjudaginn 9. júní næstkomandi. Viðburðurinn hefst klukkan 17 og lofar klúbburinn kvöldi fullt af stemningu, góðum drykkjum og skemmtilegum uppákomum fyrir fagfólk í bar- og veitingageiranum.
Boðið verður upp á pizzur, nachos og drykki á meðan DJ sér um tónlistina fram á kvöld. Þá verða einnig haldnir svokallaðir Fernet Branca Barback-leikar þar sem lið keppa í hraða- og þrautakeppnum sem sækja innblástur í lífið bak við barinn.
Í keppnunum reynir meðal annars á samvinnu, úthald, lipurð og hæfileikann til að halda ró sinni í skipulagðri ringulreið. Fram kemur að glæsileg verðlaun frá Fratelli Branca verði í boði fyrir þau lið sem standa sig best.
Viðburðurinn er ætlaður öllu fólki í geiranum, hvort sem það eru barþjónar, þjónar, kokkar, glasabörn, rekstraraðilar eða þau sem eru ný að stíga sín fyrstu skref í bransanum. Þá segir að kvöldið sé kjörið tækifæri til að kynnast íslensku bar- og veitingasamfélagi betur, hitta fagfólk og upplifa menninguna sem fylgir geiranum.
Innnes heldur stórsýninguna Matur & Vín 2026 þann 10. september í Korngörðum 3 þar sem um 50 erlendir birgjar munu kynna það besta úr heimi matar og víns. Sýningin stendur
Upplýsingar um viðburð
Innnes heldur stórsýninguna Matur & Vín 2026 þann 10. september í Korngörðum 3 þar sem um 50 erlendir birgjar munu kynna það besta úr heimi matar og víns. Sýningin stendur yfir frá klukkan 15:00 til 20:00 og býður fagfólki og áhugasömum upp á innsýn í nýjungar og strauma í greininni.