Framhaldsskólakynning og Íslandsmót iðn- og verkgreina verður haldin dagana 10,–13. mars 2027 í Laugardalshöllinni.
Gert er ráð fyrir að á bilinu 9.000 til 10.000 grunnskólanemendur mæti á viðburðinn en öllum nemendum 9. og 10. bekkjar er boðið.
Keppt hefur verið í 20 – 27 greinum hverju sinni og takast keppendur á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku.