Markaðurinn
Lítill og ljúfur Sveitabiti er mættur á svæðið
Loksins, loksins höfum við svarað kalli neytenda og bjóðum nú upp á mjúkan og mildan Sveitabita í litlum bita til viðbótar við þann stóra. Sveitabiti er sígildur og bragðgóður brauðostur sem á rætur að rekja til Sauðárkróks þar sem hann hefur verið framleiddur í rúm 20 ár.
Upphaflega var osturinn eingöngu seldur bændum í sveitunum í kring og er nafnið þannig tilkomið. Orðspor ostsins barst hratt út og eftir nokkurra ára sölu í Kaupfélagi Skagfirðinga, á Siglufirði og í Húnavatnssýslum varð osturinn aðgengilegur öllum landsmönnum og hefur verið allar götur síðar.
Sveitabiti er mjúkur, mildur og meiriháttar góður ostur og fæst nú í litlum 460 g bita og áfram í stórum 1,2 kg bita svo lítil heimili jafnt sem stór ættu að geta notið þessa ljúffenga osts sem hentar vel sem álegg á hvers kyns brauðmeti, sem millimál eða í matargerð.
Skoða nánar á www.ms.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt2 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Keppni2 klukkustundir síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn10 klukkustundir síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir



