Vertu memm

Keppni

Snædís áfram þjálfari Kokkalandsliðsins

Birting:

þann

Íslenska Kokkalandsliðið fékk gull fyrir fyrsta keppnisdag - Myndir og vídeó

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir landsliðsþjálfari
Mynd: Ruth Ásgeirsdóttir

Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður verður áfram þjálfari Íslenska Kokkalandsliðsins sem Klúbbur matreiðslumeistara heldur utan um og rekur. Snædís tók við Kokkalandsliðinu í mars 2023 og stýrði liðinu þegar liðið náði þriðja sætinu á Ólympíuleikunum í Stuttgart, sem haldnir voru í febrúar síðastliðinn.

Snædís útskrifaðist sem matreiðslumaður 2018 og hefur alla tíð verið tengd keppnismatreiðslu.  Hún var fyrirliði í landsliðinu sem fór á heimsmeistaramótið 2018 og var einnig fyrirliði liðsins sem var í þriðja sæti á Ólympíuleikunum í Stutgart 2020.

Íslenska Kokkalandsliðið í 3. sæti á Ólympíuleikunum

Íslenska Kokkalandsliðið fagnar 3. sætinu á Ólympíuleikunum.
Mynd: Ruth Ásgeirsdóttir

Snædís hóf nám sitt á Apótekinu, þó áhuginn hafi í raun vaknað þegar hún starfaði á Sushi Samba.  Náminu lauk hún svo á Hótel Sögu. Aðspurð sagðist Snædís þó ekki hafa gengið með kokkinn í maganum og ætlaði í raun aldrei að læra fagið, en þegar sú ákvörðun var síðar tekin þá stefndi hún jafnhliða að því að vera ein að þeim bestu!

Snædís Xyza Mae Ocampo sæmd Cordon Bleu orðu Klúbbs matreiðslumeistara

Snædís Xyza Mae Ocampo var sæmd Cordon Bleu orðu Klúbbs matreiðslumeistara nú á dögunum.
Bjarki Ingþór Hilmarsson formaður orðunefndar, Snædís Xyza Mae Ocampo og Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara.
Mynd: aðsend / Þórir Erlingsson

Með það í huga varð hún fljótlega einn af aðstoðarmönnum landsliðsins og síðar einn af aðstoðarmönnunum á Ólympíuleiknum 2016. Í dag starfar Snædís sem yfirmatreiðslumaður á ION Hótel.

Þegar Snædís var spurð um markmið hennar þá sagðist hún vilja vera fyrirmynd fyrir alla sem vinna með henni og vonist til að þeim finnist þau geta sótt til hennar ráð bæði nú og í framtíðinni.

“Ein af mínum stoltustu stundum var þegar ég gekk upp á svið til að fá afhent brons verðlaun á Ólympíuleikunum 2020 komin fjóra mánuði á leið. Að endurtaka leikinn, sem þjálfari fjórum árum síðar, var ekki síður stórkostlegt.

Ég á þá ósk að landsliðsfólk framtíðarinnar eigi eftir að upplifa þessa sömu tilfinningu. Við ætlum okkur á stóra hluti á heimsmeistaramótinu 2026, en við höfum ekki náð á pall þar ennþá, og við ætlum okkur að breyta því! ”

sagði Snædís að lokum.

Þórir Erlingsson

Þórir Erlingsson
Mynd: aðsend / Þórir Erlingsson

„Árangur á stórmótum kemur ekki af sjálfu sér og kostar mikla vinnu frá öllum sem að því koma, sama hvort við eru að tala um landsliðsþjálfara, landsliðsfólk, fjölskyldur þeirra, aðstoðarmenn og alla aðra sem að liðinu koma.

Það að fylgjast með Snædísi vaxa frá aðstoðarmanni landsliðsins upp í þátttakanda liðsins og svo nú síðast sem þjálfara sýnir okkur öllum hvað hægt er að gera með mikilli vinnu, áræðni og einbeitingu.

Við erum stolt af því að Snædís sé til í að halda áfram sem landsliðsþjálfari Kokkalandsliðsins“

segir Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara.

„Við megum heldur ekki gleyma bakhjörlum og styrktaraðilum liðsins en án þeirra væri ekki hægt að halda úti svona öflugu liði.

Undanfarin ár hefur landsliðið æft í húsnæði fagfélagana á Stórhöfða og á Matvís miklar þakkir fyrir að veita þá aðstöðu,“

bætir Þórir við.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið