Vertu memm

Markaðurinn

Wolt og European Transport Safety Council í samstarf um öruggari götur

Birting:

þann

Wolt

Wolt og European Transport Safety Council (ETSC) hafa hafið eins árs samstarf um öryggi gangandi vegfarenda, hjólreiðafólks og mótorhjólafólks, þar á meðal hjólasendla. Skoðað verður hvernig götuhönnun og aðrir innviðir hafa áhrif á öryggi þeirra. ETSC mun gefa út skýrslu um efnið og í kjölfarið verður haldið evrópskt vefnámskeið og málstofa.

Tilkynnt er um samstarfið í Evrópsku samgönguvikunni, sem stendur frá 16. til 22. september. ETSC eru leiðandi óháð samtök á sviði umferðaröryggis í Evrópu.

Gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og mótorhjólafólk eru mikill meirihluti þeirra sem látast í umferðinni í borgum Evrópusambandsins. Hægt hefur gengið að fækka þessum dauðsföllum. Á næstu mánuðum mun ETSC birta skýrslu um hvernig megi bæta öryggi þessara hópa út frá fyrirliggjandi gögnum. Þar verður meðal annars fjallað um hönnun gatnamóta, aðskilda hjólastíga og leiðir til að halda umferðarhraða í skefjum.

Sérstaklega verður horft til fólks sem hjólar reglulega í borgum, þar á meðal sívaxandi hóps hjólasendla. Sendlar verja meiri tíma í umferðinni en flest annað hjólreiðafólk og vinna við ólíkar veður- og umferðaraðstæður. Reynsla þeirra getur því nýst við að meta hvernig götur og umferðarskipulag reynast í daglegri notkun.

Eftir útgáfu skýrslunnar verður haldið evrópskt vefnámskeið og málstofa. Þar munu fulltrúar stjórnvalda og borga ásamt sérfræðingum í umferðaröryggi ræða niðurstöðurnar og hvernig nýta megi þær til að gera götur öruggari.

Wolt og ETSC ætla einnig að kanna hvernig reynsla sendlanna sjálfra geti nýst í verkefninu. Sú vinna er enn á frumstigi og verður útfærð nánar á næstu mánuðum.

„Sendlar eru á götum úti á hverjum degi og finna vel fyrir því hvað góðir innviðir skipta miklu máli í starfi þeirra. Við viljum að tillögur um öruggari götur byggist á vönduðum gögnum.

Þess vegna förum við í þetta samstarf við ETSC. Við vonumst líka til að reynsla sendlanna okkar geti nýst í verkefninu,“

segir Jóhann Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi.

Vinsælustu pizzaáleggin á Íslandi

Jóhann Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi.

„Flestir sem látast í umferðinni í evrópskum borgum eru gangandi, hjólandi eða á mótorhjóli. Hönnun gatnanna skiptir miklu máli fyrir öryggi þeirra. Hjólasendlar verja meiri tíma í umferðinni en nánast allir aðrir og það skiptir þá því sérstaklega miklu að vel sé staðið að þessum málum.

Við erum ánægð með samstarfið við Wolt og vonumst til að finna góðar leiðir til að nýta reynslåu sendlanna í verkefninu,“

segir Antonio Avenoso, framkvæmdastjóri ETSC.

ETSC hefur fullt ritstjórnarlegt sjálfstæði við gerð skýrslunnar. Samkvæmt nýjustu Road Safety Performance Index-skýrslu samtakanna stefnir í að dauðsföllum í umferðinni í Evrópu fækki aðeins um helming þess sem þarf til að ná markmiði Evrópusambandsins fyrir árið 2030.

Wolt veitir sendlum nú þegar ókeypis slysa- og ábyrgðartryggingu gagnvart þriðja aðila meðan þeir sinna afhendingum. Með samstarfinu við ETSC vill fyrirtækið einnig stuðla að öruggari götum með því að styðja við rannsóknir á því hvaða úrbætur skila árangri.

Nánari upplýsingar um skýrsluna, vefnámskeiðið og málstofuna verða kynntar á næstu mánuðum.

Samstarfið við ETSC er eitt af nokkrum verkefnum Wolt á sviði umferðaröryggis í tengslum við Evrópsku samgönguvikuna. Í Þýskalandi hefur Wolt hafið samstarf við DEKRA um netnámskeið í umferðaröryggi fyrir sendla.

Fyrirtækið heldur einnig öryggisdag fyrir sendla í Köln þar sem öryggisjakkar, hjálmar og fræðsluefni verða afhent. Í Tékklandi hefur Wolt staðið fyrir umferðaröryggisherferð og öryggisdegi með Dám respekt, sem hefur lengi verið samstarfsaðili fyrirtækisins.

Wolt

Í Ungverjalandi hefur Wolt undirritað Budapest Safety Charter ásamt borgaryfirvöldum í Búdapest um samstarf í umferðaröryggismálum. Í Rúmeníu vinnur Wolt með hjólreiðasamtökunum HaiCuBicla að öryggisdegi fyrir sendla í Búkarest.

Markmiðið er meðal annars að nýta ábendingar sendla við skipulag gatna og annarra samgönguinnviða. Í Grikklandi vinnur Wolt með fjölmiðlum að því að auka vitund um umferðaröryggi. Á fleiri mörkuðum stendur fyrirtækið einnig fyrir umferðaröryggisherferðum fyrir sendla og almenning.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið