Markaðurinn
Jóhann Helgason tekur við stærra stjórnunarhlutverki hjá Wolt á alþjóðavísu
Jóhann Már Helgason færir sig nú í stærra hlutverk innan Wolt á alþjóðavísu. Eftir að hafa starfað sem forstöðumaður viðskiptaþróunar (e. Head of Commercial) á Íslandi síðan í september 2024 tekur Jóhann við tvíþættri stöðu; annars vegar sem framkvæmdastjóri á Íslandi og hins vegar sem forstöðumaður viðskiptastýringar (e. Regional Head of Account Management) í Noregi, Lúxemborg og Íslandi.
Í nýju hlutverki mun Jóhann hafa yfirumsjón með stórum hluta af sölustarfsemi Wolt á mörkuðunum þremur. Til marks um stærðargráðuna er norski markaðurinn einn og sér fjórfalt stærri en sá íslenski. Jóhann mun þar stýra alþjóðlegu teymi þar sem um ellefu stjórnendur heyra beint undir hann, og mun þannig efla enn frekar samstarf og framkvæmd á svæðinu.
„Ég er virkilega spenntur fyrir þessu nýja hlutverki og tækifærinu til að starfa meira á alþjóðavettvangi,“
segir Jóhann.
„Wolt hefur byggt upp alveg einstaka þjónustu á þessum mörkuðum og ég hlakka til að vinna náið með teymunum okkar á Íslandi, í Noregi og Lúxemborg að því að halda áfram að stækka og skapa aukið virði fyrir bæði samstarfsaðila og viðskiptavini.“
Jóhann hefur verið lykilmaður í vexti Wolt á Íslandi og byggt upp sterk tengsl við veitingastaði og verslanir. Undir hans stjórn hefur Wolt orðið eitt þekktasta vörumerki landsins með yfir 500 samstarfsaðila á skrá. Vinsældirnar leyna sér ekki, en fyrirtækið hefur til að mynda verið tekið fyrir í Áramótaskaupinu tvö ár í röð.
Elisabeth Stenersen, forstöðumaður markaðssvæða (Head of Marketplace) hjá Wolt á Norðurlöndum, í Eystrasaltsríkjunum og Lúxemborg, segir Jóhann vel undirbúinn fyrir stærra verkefni:
„Jóhann hefur staðið sig frábærlega á Íslandi og sýnt af sér sterka leiðtogahæfileika og skýra sýn í viðskiptum. Hann er algjörlega tilbúinn í stærra hlutverk og við vitum að hann á eftir að styrkja starfsemi okkar til muna þvert á þessi lönd.“
Breytingin er til marks um þá áherslu sem Wolt leggur á að efla eigið starfsfólk og auka samstarf á milli landa um leið og fyrirtækið heldur áfram að stækka á heimsvísu.
-
Markaðurinn4 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn4 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni17 klukkustundir síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt6 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Frétt4 dagar síðanÁttu þessa Voga ídýfu? Ekki neyta hennar ef þú ert með hveitiofnæmi




