Markaðurinn
Vinsælustu pizzaáleggin á Íslandi
Pizza er af mörgum talin upprunalega „take-away“ máltíðin. Allt frá því að Jakob Magnússon kynnti pizzuna á veitingastaðnum Horninu árið 1979 hefur neysla Íslendinga farið vaxandi.
Í dag er pizza næstvinsælasti rétturinn sem Íslendingar panta heim samkvæmt nýjustu tölum frá Wolt. Tölurnar byggja á gögnum frá meira en 400 veitingastöðum á Íslandi. Á síðasta ári einu saman afhentu sendlar Wolt meira en 160.000 pizzur hér á landi.
„Ég leyfi mér að segja að enginn þekki íslenska pizzumarkaðinn betur en við. Alls staðar þar sem við störfum er að minnsta kosti einn staður sem selur pizzur.
Við getum nú í fyrsta sinn birt lista yfir vinsælustu áleggin og samsetningarnar í landinu, sem eru blanda af hefðbundnum ítölskum bragðtegundum og nýjum útfærslum,“
segir Jóhann Már Helgason, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Wolt á Íslandi.
Pepperóní á toppnum – Hot Honey sækir í sig veðrið
Á toppi listans situr pepperóní sem afgerandi sigurvegari. Klassísk álegg standa enn sterkar en listinn sýnir einnig hversu fjölbreytt úrvalið er orðið, allt frá pepperóní og nautakjöti til Parma-skinku og diavola.
„Samhliða hefðbundnum kostum eru nýrri útgáfur eins og rækjur, geitaostur og ekki síst hot honey að ryðja sér til rúms. Þá fjölgar einnig glútenlausum, vegan og grænmetisréttum. Það er nánast hægt að fullyrða að allir finni pizzu við sitt hæfi. Sjálfur vel ég pepperóní, rjómaost og papriku,“
segir Jóhann og bætir við:
„Svo er ég einn af þeim sem finnst ananas eiga heima á pizzu annað slagið.“
Ananas heldur áfram að skipta fólki í fylkingar. Þótt ananas hafi rétt svo náð topp tíu í Noregi, er hann meðal fimm vinsælustu áleggja hér á landi. Óvíst er hvort það tengist ummælum Guðna Th. Jóhannessonar, fyrrverandi forseta, árið 2017 þegar hann ræddi um að banna ananas á pizzur.
10 vinsælustu pizzaáleggin á Íslandi í take-away:
Pepperóní
Margherita (Ostur og sósa)
Nautakjöt
Ananas
Diavola
Beikon
Kjúklingur
Sveppir
Hot Honey
Parma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn4 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn3 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Keppni3 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Keppni3 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september
-
Markaðurinn2 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?





