Markaðurinn
Sérsniðið íslenskunám fyrir Wolt-sendla: Samstarf sem eflir inngildingu

Jón Gunnar Þórðarson, forstjóri og stofnandi Bara tala og Jóhann Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi
Wolt á Íslandi tilkynnti í dag um nýtt samstarf við íslenska máltæknifyrirtækið Bara tala til að bjóða sendlum um allt land ókeypis námskeið í íslensku. Markmið verkefnisins er að styðja þá sem ekki tala íslensku við að efla íslenskukunnáttu sína, bæta samskipti í daglegu lífi og styrkja aðlögun þeirra að íslensku samfélagi.
Með samstarfinu fá allir sendlar sem skrá sig í gegnum Wolt annaðhvort í appinu eða á sérstakri skráningarsíðu fullan aðgang að A1 og A2 námskeiðum Bara tala án endurgjalds.
Auk almenns íslenskunáms vinna Wolt og Bara tala saman að þróun sérhæfðra námskeiða sem eru sniðin að þörfum sendla. Verkefnið mun innihalda 2–4 stutt námskeið, hvert um sig um 45 mínútur að lengd, sem fjalla um hagnýta þætti sendlastarfsins.
Sérsniðið efni mun innihalda:
Helstu hugtök: Lykilorðaforði tengdur sendlastarfi.
Myndræna framsetningu: Setningalistar sem nýtast beint í starfi.
Gagnvirka þjálfun: Framburðaræfingar og talþjálfun.
Hagnýtar lausnir: Setningalistar fyrir algengar aðstæður í sendingum.
Til að tryggja aðgengi verða þessir setningalistar þýddir á 25 tungumál, sem hjálpar sendlum að skilja merkingu og samhengi á skýran hátt á meðan þeir læra íslensku.
„Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sendla okkar sem ekki tala íslensku til að bæta tungumálakunnáttu sína og verða betur aðlagaðir að íslensku samfélagi,“
sagði Jóhann Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi.
Valdefling í gegnum tungumál
Jón Gunnar Þórðarson, forstjóri og stofnandi Bara tala, leggur áherslu á víðtækari áhrif verkefnisins:
„Tungumálið er lykill að þátttöku og tækifærum. Margir sendlar Wolt eru nýkomnir til landsins og er Bara tala oft þeirra fyrsta skref í átt að íslenskunámi. Við megum ekki gefa okkur að allir kunni ensku, enda á það ekki að vera sjálfgefið að fólk þurfi að læra ensku til þess að geta starfað á Íslandi.
Með samstarfi okkar við Wolt náum við til fólks þar sem það er statt og veitum hagnýt verkfæri sem styðja bæði starf þess og daglegt líf. Þetta snýst um valdeflingu í gegnum tungumál.“
Jón Gunnar hvetur jafnframt Íslendinga til að sýna samstöðu:
„Við viljum hvetja landsmenn til að taka vel á móti sendlum Wolt. Ef þeir reyna fyrir sér á íslensku, þá skulum við svara þeim á íslensku í stað þess að skipta strax yfir í ensku. Sýnum þolinmæði, hlustum og munum að íslenska með hreim er tákn um hugrekki.“
Allt efni Bara tala verður aðgengilegt skráðum sendlum á Íslandi, þannig að þeir geti haldið áfram að læra og þróa færni sína yfir tíma. Þetta samstarf endurspeglar áframhaldandi skuldbindingu Wolt til að styðja við sendla sína umfram hefðbundnar afhendingar með því að skapa tækifæri til persónulegs þroska, þátttöku og dýpri tengsla við samfélagið.
-
Markaðurinn3 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn3 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Frétt7 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt6 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt6 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun12 klukkustundir síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn


