Uppskriftir
Súkkulaðibitasmákökur með heslihnetum og sjávarsalti
Varúð! Þessar kökur eru gríðarlega ávanabindandi og það er með öllu ómögulegt að fá sér bara eina!
Súkkulaði, heslihnetur og salt passa svo afskaplega vel saman í þessum smákökum sem eru með smá stökkum köntum en mjúkri miðju.
18 kökur:
Smjör (ósaltað), 225 g
Púðursykur, 180 g
Sykur, 120 g
Egg, 1 stk
Vanillufræ, 0,5 tsk / Rapnuzel (má líka nota 2 tsk vanilludropa)
Hveiti, 210 g
Borðsalt, 1,25 tsk
Lyftiduft, 0,5 tsk
Matarsódi, 0,25 tsk
Súkkulaðibitar, 300 g
Heilar heslihnetur, 60 g
Flögusalt, 2 msk
Aðferð:
Forhitið ofn í 190°C með yfir og undirhita.
Bræðið smjörið. Hrærið vandlega saman bráðið smjör, púðursykur og sykur með góðri sleikju þar til allt hefur samlagast að fullu. Þetta tekur 1-2 mín með handafli.
Hrærið eggið því næst saman við ásamt vanillufræjum þar til blandan er orðin glansandi og eggið hefur samlagast að fullu. Þetta tekur um 1 mín með handafli.
Bætið hveiti, borðsalti, lyftidufti og matarsóda út í skálina og hrærið þar til til allt hefur samlagast.
Saxið heslihnetur og bætið út í skálina ásamt súkkulaðibitunum og blandið vel saman.
Leggið ofnpappír á bökunarplötu.
Myndið 6 kúlur svipaðar að stærð og golfkúlur og raðið á bökunarplötu með góðu millibili þar sem kökurnar dreifa svolítið úr sér.
Bakið í 8-10 mín í miðjum ofni. Stráið sjávarsalti yfir kökurnar þegar þær koma úr ofninum og látið kólna í nokkrar mín á plötunni áður en kökurnar eru færðar á kæligrind.
Endurtakið með restina af deiginu.
Mynd og höfundur: Snorri Guðmundsson | Matur & Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Markaðurinn6 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 klukkustundir síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Frétt22 klukkustundir síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020



