Nemendur & nemakeppni
Fyrsta sveinspróf í matreiðslu utan höfuðborgarsvæðisins
Það voru sannarlega merk tímamót í sögu Verkmenntaskólans á Akureyri og um leið í matreiðslunámi á Íslandi er tíu nemendur luku sveinsprófi í matreiðslu nú í vikunni.
Þetta er í fyrsta skipti sem sveinspróf er haldið í matreiðslu í VMA og utan höfuðborgarsvæðisins. Nemendurnir tíu sem þreyttu sveinsprófið hafa allir verið í þriðja bekk í matreiðslu á þessari önn og staðið sig mjög vel. Allir stóðust þeir sveinsprófið.
Marína Sigurgeirsdóttir, brautarstjóri matvælabrautar VMA, segir í samtali við vma.is að sveinsprófið hafi gengið mjög vel og fulltrúar sveinsprófsnefndar í matreiðslu, sem allir komu frá höfuðborgarsvæðinu, hafi lofað mjög þá aðstöðu sem skólinn hafi til menntunar matreiðslu- og framreiðslufólks. Hún sagðist lengi hafa beðið eftir þessum degi, enda hafi verið markvisst unnið að þessu í mörg undanfarin ár.
Í sveinsprófi í matreiðslu er matreitt samkvæmt sex rétta matseðli sem sveinsprófsnefnd gefur út. Sveinsprófið tók tvo daga, það hófst sl. þriðjudag og var frá kl. 11 til 19 þann dag og í fyrradag var aftur hafist handa kl. 11 og prófinu lauk með glæsilegum málsverði þar sem gestir nutu þeirra dýrindis krása sem sveinsprófsnemarnir töfruðu fram.
Nemar í framreiðslu sem starfa á tveimur veitingastöðum á Akureyri, annars vegar Rub 23 og hins vegar Strikinu, önnuðust framreiðslu undir stjórn Trausta Víglundssonar, formanns sveinsprófsnefndar í framreiðslu, og Eddu Bjarkar Kristinsdóttur, kennara í framreiðslu við matvælabraut VMA. Sigmar Örn Ingólfsson, fulltrúi í sveinsprófsnefnd í framreiðslu, var einnig viðstaddur.

Slegið á létta strengi.
Jakob Magnússon í sveinsprófsnefnd og Friðrik Sigurðsson formaður sveinsprófsnefndar
Í sveinsprófsnefnd í matreiðslu, sem dæmdi frammistöðu nemendanna, eru Friðrik Sigurðsson formaður og með honum Jakob Magnússon og Bjarki Hilmarsson.
Marína Sigurgeirsdóttir segir að sveinsprófið hafi verið mikil og ánægjuleg tímamót, enda hafi matreiðslunemar nú í fyrsta skipti verið fullmenntaðir á landsbyggðinni.
Mikil þörf séu sé á bæði matreiðslumönnum og þjónum til starfa í ört vaxandi veitingageira og því sé afar mikilvægt að hafa loks getað stigið þetta skref.
Í síðustu viku þreyttu þrjátíu nemendur sveinspróf í matreiðslu í Hótel og Matvælaskólanum og nú tíu á Akureyri.
Myndir: vma.is

-
Markaðurinn6 klukkustundir síðan
Veitingastaðurinn Stapinn á Arnarstapa er til sölu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðan
Pizzabakarinn opnar á Siglufirði – Theodór Dreki: „Við hættum ekki fyrr en pizzan var fullkomin“
-
Keppni4 dagar síðan
Íslenska landsliðið í kjötiðnaði sýndi frábæran árangur á Heimsmeistaramótinu í París – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Snædís, Hafliði og Marlís kynntu íslenska matargerð á ríkisheimsókn forsetahjóna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Pop-up kvöld: Gísli Matt mætir á Le KocK – aðeins þetta eina kvöld
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Kælivagn til leigu
-
Íslandsmót barþjóna3 dagar síðan
Róbert Aron Garðarsson Proppé er Íslandsmeistari Barþjóna 2025 – Myndir og vídeó
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Kynning í Garra næsta miðvikudag