Viðtöl, örfréttir & frumraun
Fimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun

Efri röð: Óskar Finnsson, Bjarki Hilmarsson og Úlfar Finnbjörnsson.
Neðri röð: Gabríel Kristinn Bjarnason og Ólöf Ólafsdóttir
Á Hótel Geysir verður efnt til sérstaks pop-up matarviðburðar fimmtudaginn 30. apríl kl. 18:00, þar sem fimm fagmenn sameina krafta sína í einni kvöldstund.
Um er að ræða matarupplifun þar sem matargerð og bókaútgáfa mætast. Matreiðslumeistararnir Bjarki Hilmarsson, Óskar Finnsson, Úlfar Finnbjörnsson og Gabríel Kristinn Bjarnason taka þátt ásamt Ólöfu Ólafsdóttur, konditor. Áhersla kvöldsins er á að kynna rétti úr eigin verkum og færa gestum persónulega sýn hvers fagmanns á hráefni og framsetningu.
Þetta er klárlega einstakt tækifæri fyrir gesti til að upplifa mat sem byggir bæði á sögum og sköpun, þar sem hver réttur tengist hugmyndafræði höfunda sinna. Takmarkað sætaframboð er í boði.
Matseðill kvöldsins spannar fjölbreytta forrétti, aðalrétti og eftirrétti. Meðal þess sem boðið verður upp á eru djúpsteikt vaffla með lambatartar, rauðrófucarpaccio og bruschetta með tómötum og mozzarella. Þá má einnig nefna grafna bleikju, gæsalifur og hörpuskel með rækju í humarkremi.
Í aðalréttum verður meðal annars boðið upp á ribeye-steik með meðlæti á borð við kartöflur steiktar í andarfitu og chimichurri. Eftirréttirnir eru í höndum Ólafar og þar má búast við hvítu súkkulaði og kampavínsmús með jarðarberjum, heitum hindberjum og konfekti með súkkulaði og brómberjum.
Hægt er að bóka sæti með því að senda tölvupóst á [email protected] og jafnframt er í boði sérstakt tilboð á gistingu og veitingum í tilefni kvöldsins.
Mynd: aðsend
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn7 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar1 dagur síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Markaðurinn16 klukkustundir síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember



