Nemendur & nemakeppni
Eyþór Ás, sonur forseta KM, sækir matreiðslunám alla leið norður til Akureyrar frá Selfossi
Í vetur er kenndur 2. bekkur í matreiðslu í VMA, fyrri bekkurinn af tveimur sem nemendur þurfa að ljúka áður en til sveinsprófs kemur. Einn af nemendunum í námshópnum er Eyþór Ás Þórisson og sækir hann námið um langan veg. Hann býr á Selfossi og því er heldur betur langt fyrir hann að fara í skólann.
Á vefsíðu VMA kemur fram að hann segist jafnan keyra norður á sunnudegi og síðan er kennt frá mánudegi til fimmtudags. Seinnipart fimmtudags liggur leiðin aftur suður og á föstudögum og laugardögum eldar Eyþór mat fyrir gesti á Hótel Geysi. Hann segir að vissulega geti þetta stundum verið töluvert púsluspil en hann kunni vel við námið í VMA og það skipti mestu máli.
Eyþór er 24 ára gamall. Hann rifjar upp að í uppvextinum hafi hann búið á Eyrarbakka, Selfossi og í Bandaríkjunum og verið því í grunnskóla í báðum löndum. Hann fór í Menntaskólann á Laugarvatni en lauk ekki stúdentsprófi, matreiðslan togaði meira í hann.
Eyþór rifjar upp hvernig það kom til að hann fór að starfa á veitingahúsum.
„Einn góðan veðurdag árið 2017 var ég úti að borða á Kaffi Krús á Selfossi með foreldrum mínum. Eigandi staðarins kom til föður míns, sem er matreiðslumeistari og þekkir mjög vel til í þessum bransa, og spyr hvort hann viti um einhvern sem sé að leita sér að vinnu á veitingahúsi. Pabbi sagði að hann gæti prófað að spyrja mig. Næsta dag fór ég á prufuvakt á Kaffi Krús og eftir það fór boltinn að rúlla.
Ég vann um tíma á Kaffi Krús en í janúar 2020 lá leiðin upp á Hótel Geysi þar sem ég hef síðan starfað undir handleiðslu Bjarka Hilmarssonar yfirmatreiðslumanns við A la Carte, morgunverðarhlaðborð og hádegisverðarhlaðborð. Í raun hef ég starfað á Hótel Geysi sem fullgildur kokkur, nema á pappírunum. Ég hef fyrir löngu lokið við áskilinn samningstíma á vinnustað og grunnfögum eins og íslensku, ensku og stærðfræði lauk ég á sínum tíma á Laugarvatni.
Ég fór ekki í gegnum grunndeild matvæla en fer inn í þetta nám í gegnum raunfærnimat vegna þeirrar reynslu sem ég hef aflað mér í faginu. Ég vonast til þess að geta í framhaldinu farið í þriðja bekkinn og lokið náminu fyrir sveinsprófið til þess að fá full réttindi sem matreiðslumaður.“
Eyþór segir að auðvitað hafi það haft töluvert að segja í starfsvali hans að faðir hans, Þórir Erlingsson, hafi lengi starfað í þessum geira og sem stendur starfi hann sem forseti Klúbbs matreiðslumeistara og jafnframt sem framkvæmdastjóri kokkalandsliðsins.
En hvaða matur skyldi vera í mestu uppáhaldi hjá Eyþóri að elda? Þeirri spurningu er hann fljótur að svara; naut og lamb. En uppáhalds maturinn að borða segir Eyþór að sé tvímælalaust humar.
Mynd: vma.is.
-
Frétt5 dagar síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Markaðurinn6 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Keppni5 dagar síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun18 klukkustundir síðanNýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanÞráinn Freyr: „Það er alltaf spennandi að skapa eitthvað nýtt“
-
Markaðurinn6 dagar síðanYfirkokkur/Verkstjóri óskast
-
Markaðurinn5 dagar síðanNóg um að vera hjá ÓJ&K-ÍSAM í Korputorginu
-
Markaðurinn4 dagar síðanMatreiðslumaður óskast á Hótel Reykjavík Sögu í hjarta borgarinnar




