Viðtöl, örfréttir & frumraun
Íslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus

Arnór Ingi Bjarkason og Lina Marija Balčiūnaitė fagna viðurkenningu Michelin Guide fyrir veitingastað sinn, Skóg.
Íslenski matreiðslumaðurinn Arnór Ingi Bjarkason og eiginkona hans, Lina Marija Balčiūnaitė, hafa hlotið athygli í nýútkomnum Michelin Guide fyrir Litháen. Nýi veitingastaður þeirra hjóna, Skóg, er meðal þeirra staða sem hljóta Michelin Recommendation, viðurkenningu sem veitt er veitingastöðum sem þykja skara fram úr og mælt er sérstaklega með af Michelin-úttektarmönnum.
Árangurinn er athyglisverður í ljósi þess að innan við ár er liðið frá opnun staðarins. Arnór og Lina Marija opnuðu Skóg í Vilníus þann 23. ágúst á síðasta ári.
Sjá einnig: Arnór Ingi og Lina fá frábærar viðtökur með Skóg
Arnór Ingi er þegar vel þekktur í veitingageiranum í Litháen. Hann varð fyrstur matreiðslumanna í landinu til að hljóta Michelin Green Star fyrir framúrskarandi árangur á sviði sjálfbærni í matargerð.
Sjá einnig: Íslenskur matreiðslumaður í Litháen fær græna Michelin stjörnu
Á meðan Arnór leiðir eldhúsið sér Lina Marija um þjónustuna í salnum og hefur hún einnig hlotið mikla viðurkenningu fyrir störf sín. Á síðasta ári hlaut hún Michelin Service Award fyrir framúrskarandi þjónustu og persónulega nálgun gagnvart gestum.
Á Skóg mætast litháísk náttúra, árstíðabundin hráefni og norræn matargerð. Lögð er sérstök áhersla á lífræn hráefni, sjálfbærni og virðingu fyrir uppruna matvælanna. Gestum stendur til boða sjö eða þrettán rétta smakkseðill ásamt sérvalinni vínpörun.
Skemmtileg tilviljun er að veitingastaðurinn er staðsettur aðeins nokkrum húsum frá ræðismannsskrifstofu Íslands í Vilníus.
Í umsögn Michelin Guide segir að Arnór hafi yfirgefið veitingastaðinn Red Brick til að opna eigin stað í borginni og tekið yfir húsnæði sem áður hýsti pítsustað. Gamli pítsuofninn sé enn í aðalhlutverki í salnum og nýti Arnór hann við gerð nokkurra rétta sinna. Þá er sérstaklega bent á að fyrir þá sem vilja upplifa staðinn til fulls sé ráðlagt að velja sjö eða þrettán rétta smakkseðlana.
Michelin nefnir einnig að nafnið Skóg sé sótt í íslenskuna og þýði „forest“, eða skógur, og að náttúran sé ein helsta uppspretta innblásturs í matargerð staðarins, þar sem hráefnin séu að stórum hluta lífræn.
Heimasíða: skog.lt
Myndir: úr einkasafni
-
Markaðurinn6 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni6 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Markaðurinn5 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn6 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt4 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt3 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
-
Frétt2 dagar síðanEndurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann







