Viðtöl, örfréttir & frumraun
Michelin hættir með grænu stjörnuna
Michelin Guide hefur tilkynnt að græna stjarnan svokallaða, sem veitt hefur verið veitingastöðum fyrir sjálfbærni og umhverfisvæna starfshætti, verði lögð niður. Ákvörðunin kemur í kjölfar vangaveltna innan veitingageirans undanfarna mánuði um framtíð viðurkenningarinnar.
Græna Michelin-stjarnan var kynnt til sögunnar árið 2020 og var ætlað að draga fram veitingastaði sem lögðu sérstaka áherslu á sjálfbærni í rekstri, hráefnavali og matargerð. Viðurkenningin var veitt samhliða hefðbundnum Michelin-stjörnum í hverri nýrri útgáfu leiðarvísisins.
Nú hefur Michelin staðfest að græna stjarnan verði „smám saman felld niður“ og munu þeir veitingastaðir sem nú bera viðurkenninguna missa hana í lok þessa árs.
Í staðinn hyggst Michelin setja af stað nýtt framtak undir heitinu Mindful Voices. Verkefnið verður kynnt formlega næsta mánuð á Michelin Guide Nordics athöfninni í Kaupmannahöfn og er ætlað að segja sögur af matreiðslumönnum, hótelrekendum og vínframleiðendum sem vinna að nýjum og áhugaverðum lausnum í sjálfbærni og faginu almennt.
Ólíkt grænu stjörnunni verður Mindful Voices þó ekki formleg viðurkenning. Engin sérstök merking eða tákn mun fylgja verkefninu.
Gwendal Poullennec, alþjóðastjóri Michelin Guide, segir verkefninu ætlað að draga fram einstaklinga sem séu að breyta hefðbundnum vinnubrögðum innan faggreinanna..
„Þetta byggir á því sem eftirlitsteymi Michelin sér af eigin raun. Hugmyndum og nálgunum sem eru að breyta því hvernig hlutirnir eru gerðir og eiga skilið að fá athygli,“
segir Gwendal meðal annars í tilkynningu Michelin.
Smellið hér til að sjá lista yfir íslenska veitingastaði með Michelin-stjörnu og þá staði sem Michelin mælir sérstaklega með.
-
Markaðurinn4 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn4 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni1 dagur síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Frétt7 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn13 klukkustundir síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf



