Vertu memm

Frétt

Veitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn

Birting:

þann

Ísskúlur - Eftirréttur

Þótt margir tengi ís fyrst og fremst við hlýja sumardaga benda nýjar tölur til þess að eftirspurn eftir ís sé einnig mikil yfir vetrarmánuðina. Ný greining frá írska mjólkursamlaginu Lakeland Dairies, sem framleiðir mjúkíssvörur undir vörumerkinu Comelle, sýnir að tæplega þriðjungur allrar íssölu utan heimilis á sér stað yfir veturinn.

Samkvæmt fyrirtækinu fara rúm 30 prósent af allri íssölu á veitingastöðum, kaffihúsum og öðrum veitingastöðum fram yfir vetrarmánuðina. Í sjö af hverjum tíu tilvikum ákveða neytendur að kaupa ís án þess að hafa ætlað sér það fyrirfram.

Ís eftirréttir njóta meiri vinsælda þegar kólnar

Gögnin sýna jafnframt að íseftirréttir skipa stærra hlutverk yfir kaldari árstímann. Þeir standa undir 46 prósentum af íssölunni á veturna, samanborið við 33 prósent yfir sumarið.

Að mati Comelle bendir þetta til þess að veitingastaðir geti nýtt sér vannýtt tekjutækifæri með því að laga eftirréttaframboð sitt að árstíðinni í stað þess að líta á ís sem hreina sumarvöru.

Veitingastaðir hvattir til að hugsa út fyrir sumarið

Ísskúla - Eftirréttur - Shake

Í haust og vetrarskýrslunni fyrir árið 2026 bendir fyrirtækið á ýmsar leiðir sem geta aukið sölu á veitingastöðum.  Þar er meðal annars hvatt til þess að þróa mjúkís og mjólkurhristinga sem sækja innblástur í árstíðabundna kokteila og vinsæla kaffihúsadrykki, byggja á jólalegum bragðtegundum og nýta áberandi liti og skraut.

Einnig er bent á að meðlæti á borð við ávaxtamauk, sultur og síróp geti aukið bæði áferð og bragð, auk þess að skapa verðmætari upplifun fyrir gesti. Þá sé einnig áhugavert að prófa óhefðbundnar bragðsamsetningar þar sem sætt og salt fara saman.

Eftirréttir geta orðið verðmætari

Ísskúla - Eftirréttur

Paul Jennings, yfirmaður matvælasviðs hjá Lakeland Dairies, segir það vera útbreiddan misskilning að mjúkís og mjólkurhristingar eigi aðeins heima yfir sumarmánuðina.

„Gögnin segja allt aðra sögu. Neytendur leita í auknum mæli að hagkvæmri dekurupplifun allt árið um kring og við sjáum mikil tækifæri fyrir rekstraraðila sem laga eftirréttaframboð sitt að breyttri neysluhegðun eftir árstíðum,“

segir Paul Jennings.

Hann segir fjölmörg tækifæri felast í því að bjóða upp á nostalgískar jólabragðtegundir, kaffihúsa drykki, óvæntar bragðsamsetningar og eftirrétti sem skapa eftirminnilega upplifun. Slíkar nýjungar geti hjálpað veitingastöðum að skera sig úr, laða að fleiri gesti og bæta afkomu yfir vetrarmánuðina.

Fyrri greiningar Comelle hafa jafnframt leitt í ljós að með framandi bragðtegundum og vönduðu meðlæti geti ísbúðir og fjölskylduveitingastaðir hækkað söluverð á mjúkís um allt að 150 prósent. Á veitingastöðum geti hækkunin numið allt að 280 prósent, án þess að flækja vinnslu eða auka álag í eldhúsinu.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið