Vertu memm

Markaðurinn

Vilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað

Birting:

þann

Pappírssalan byggir á persónulegri þjónustu, reynslu og umhverfisvænum lausnum

Júlíus Finnbogason og Hjalti Þór Halldórsson, eigendur Pappírssölunnar.

Þegar fyrirtæki velja rekstrarvörur skipta gæði, áreiðanleiki og þjónusta oft meira máli en margir gera sér grein fyrir. Það vita eigendur Pappírssölunnar, þeir Hjalti Þór Halldórsson og Júlíus Finnbogason, sem stofnuðu fyrirtækið árið 2024 með það að markmiði að bjóða fyrirtækjum um allt land vandaðar og umhverfisvottaðar rekstrarvörur á samkeppnishæfu verði.

Í dag þjónustar Pappírssalan veitingastaði, hótel, mötuneyti, gistiheimili og fjölmörg önnur fyrirtæki með fjölbreytt úrval pappírsvara, hreinlætis- og ræstivara, uppþvotta- og þvottalausna, poka og annarra rekstrarvara.

Fyrirtækið býður einnig upp á gólfþvottavélar, ryksugur og sérhæfðar lausnir sem geta sparað fyrirtækjum bæði tíma og rekstrarkostnað.

Að baki fyrirtækinu stendur áratuga reynsla. Hjalti hefur starfað við sölu og þjónustu á fyrirtækjamarkaði í rúm tuttugu ár og komið að innleiðingu fjölmargra vörumerkja hér á landi. Júlíus hefur sömuleiðis víðtæka reynslu af rekstri, sölu og þjónustu bæði hérlendis og erlendis.

Veitingageirinn.is ræddi við eigendurna um upphaf fyrirtækisins, þjónustuna og það sem þeir telja skipta mestu máli í samskiptum við viðskiptavini.

Hugmynd sem kviknaði úr löngun til að byggja upp eigið fyrirtæki

Pappírssalan byggir á persónulegri þjónustu, reynslu og umhverfisvænum lausnum

Handsápuskammtarar frá Pappírssölunni eru hluti af heildarlausnum fyrirtækisins fyrir salerni og hreinlætisaðstöðu.

Pappírssalan varð til þegar rétti tíminn rann upp. Að sögn eigendanna hafði Hjalti lengi gengið með þá hugmynd að stofna eigið fyrirtæki á sviði rekstrarvara.

„Hjalti var búinn að vera lengi með fiðring í maganum um að stofna sitt eigið fyrirtæki tengt rekstri á rekstrarvörum og þegar tækifærið kom hafði hann samband við mig.“

Sagði Júlíus Finnbogason í samtali við veitingageirinn.is.

Þeir segja að frá upphafi hafi markmiðið verið að byggja upp fyrirtæki sem legði áherslu á góða þjónustu, einfaldar lausnir og langtímasambönd við viðskiptavini.

Pappírssalan - Logo

Áratuga reynsla nýtist á hverjum degi

Reynsla eigendanna er einn helsti styrkleiki fyrirtækisins. Hjalti hefur starfað við rekstrarvörur í meira en tvo áratugi en Júlíus kemur inn með sterkan bakgrunn úr sölu, rekstri og þjónustu.

„Hjalti hefur unnið við þetta í yfir 20 ár og með mikla reynslu í sölu og þjónustu á fyrirtækjamarkaði og innleitt mörg af þeim vörumerkjum sem eru á Íslandi í dag. Júlíus hefur víðtæka reynslu af sölustörfum, rekstri og þjónustu við viðskiptavini bæði hér heima og erlendis.“

Þeir segja að þessi reynsla geri þeim kleift að ráðleggja fyrirtækjum hvaða lausnir henta hverjum rekstri í stað þess að einblína eingöngu á vörusölu.

Viðskiptavinurinn á að ráða hvernig samskiptin fara fram

Þótt sífellt fleiri fyrirtæki færi viðskipti sín alfarið yfir á netið vilja eigendur Pappírssölunnar fara aðra leið. Þeir telja mikilvægt að viðskiptavinurinn geti sjálfur ákveðið hvernig hann vill eiga samskipti.

„Back to basic á stundum vel við hjá okkur sem og að við vildum reyna að koma inn með sambærilegar eða betri vörur á góðum verðum og einfaldari lausnir. Á meðan fókus margra fyrirtækja er að beina fólki í að panta á netinu þá viljum við að valið sé hjá viðskiptavinum.

Flott að panta á netinu fyrir þá sem vilja en á líka að vera í boði að senda okkur póst, skilaboð, hringja í okkur eða fá okkur á staðinn. Valið er hjá viðskiptavinum okkar og viljum við halda því þannig.“

Þessi nálgun hefur reynst vel og segja þeir að margir viðskiptavinir kunni að meta að geta rætt við sama tengilið frá upphafi til enda.

Hótel og veitingastaðir meðal stærstu viðskiptavinanna

Pappírssalan byggir á persónulegri þjónustu, reynslu og umhverfisvænum lausnum

Mynd frá uppsetningu skammtara hjá einu af þeim hótelum sem Pappírssalan þjónustar.

Þótt þeir vilji ekki nefna einstaka viðskiptavini segja þeir að fyrirtækið þjónusti bæði stórar hótelkeðjur og fjölmörg veitingahús.

„Þetta er viðkvæm spurning að ég tel fyrir flesta. Getum sagt að við erum hjá hótelkeðjum sem og veitingahúsum.“

Hreinlæti er lykilatriði í rekstri

Að þeirra mati eru rekstrarvörur langt frá því að vera aukaatriði. Rétt efni og rétt notkun skipta miklu máli, sérstaklega í eldhúsum þar sem gerðar eru miklar kröfur um öryggi og hreinlæti.

„Það er mikilvægt að gæðin séu góð og að hreinsiefni séu til dæmis matvælavottuð fyrir eldhúsin.“

Þeir leggja áherslu á að ráðgjöf sé stór hluti af þjónustunni og segja að þeir heimsæki fyrirtæki reglulega, fari yfir notkun vörunnar og leiðbeini starfsfólki.

„Þetta aðstoðum við okkar viðskiptavini með eftir fremsta megni og alltaf hægt að hafa samband og fá fría ráðgjöf eða fá okkur til að koma og taka spjallið sé óskað eftir því. Höfum setið starfsmannafund hjá fyrirtækjum sem voru að koma í viðskipti hjá okkur þar sem við kynntum vörurnar sem við vorum með, leiðbeindum starfsfólki í notkun þeirra og svöruðum spurningum.“

Rekstrarsparnaður snýst ekki um að fórna gæðum

Eigendurnir segja að markmiðið sé ekki að selja ódýrustu vörurnar heldur þær lausnir sem skila viðskiptavinum sem mestum ávinningi.

„Betri samningar við birgja. Þarf að vera á vaktinni líka yfir því hvar aðrir verðleggja sig og semja betur svo að við getum verið ódýrari en er auðvitað ekki alltaf hægt.“

Þeir segja að góður innkaupasamningur og rétt ráðgjöf geti skipt sköpum fyrir rekstrarkostnað fyrirtækja.

Sérlausnir sem vekja athygli

Pappírsvörur eru stærsti vöruflokkur fyrirtækisins en eigendurnir benda jafnframt á að sérlausnir njóti sífellt meiri vinsælda.

Pappírssalan byggir á persónulegri þjónustu, reynslu og umhverfisvænum lausnum

Ein mest selda vara Pappírssölunnar er salernispappír frá BulkySoft.

„Pappírsvöruflokkarnir eru langvinsælastir sem og sérsniðnar lausnir sem eru ekki í boði annars staðar.“

Þeir nefna meðal annars sérstakan fjögurra rúllu salernispappírsskammtara sem rúmar samtals 714 metra af pappír og sérhannaðar tissue-lausnir sem þeir segja einstakar á íslenskum markaði.

Umhverfisvottanir skipta sífellt meira máli

Sjálfbærni er stór þáttur í starfsemi fyrirtækisins og segja þeir að sífellt fleiri viðskiptavinir geri kröfur um umhverfisvottaðar vörur.

„Reynum alltaf að velja vörur sem bera einhverja umhverfisvottun eins og til dæmis Evrópublómið eða Svaninn. Okkar birgjar eru meðvitaðir um þetta.“

Lausnir sem byggja á þjónustu

Þeir segja að persónuleg þjónusta sé eitt helsta aðalsmerki fyrirtækisins.

„Það næst í okkur í síma, svörum fljótt tölvupóstum og ef eitthvað kemur upp á, þá bregðumst við með því að hafa samband við viðskiptavin og oft er hægt að leysa vandamálin í gegnum síma en ef ekki þá förum við til viðskiptavina og leysum úr því sem þarf að leysa.“

Sama gildi þegar óskað sé eftir vöru sem ekki er til á lager.

„Byrjum á því að hafa samband við okkar birgja sem eru nokkrir erlendis og athuga hvort þeir eigi vöruna. Finnist varan er strax samið um verð og svo haft samband við viðskiptavin um það hvort viðkomandi vara henti þeim.“

Tæknilausnir sem lækka rekstrarkostnað

Eitt af því sem eigendurnir eru hvað stoltastir af eru lausnir fyrirtækisins fyrir þvottahús.

„Þvottahúsin. Erum með lausn þar í samvinnu við tvo frábæra tæknimenn sem stórlækkar kostnað sem og að kerfin okkar eru alltaf aðgengileg tæknimönnum þar sem þessi kerfi eru nettengd.“

Þeir segja að með nettengdum kerfum sé hægt að bregðast hratt við ef eitthvað kemur upp á, aðlaga stillingar og bilanagreina án tafar. Næsta skref sé að innleiða sambærileg kerfi fyrir uppþvottavélar.

Þjónusta um allt land

Pappírssalan byggir á persónulegri þjónustu, reynslu og umhverfisvænum lausnum

Það var létt yfir eigendum Pappírssölunnar eftir að hafa lokið við að skipta út rúmlega 100 skömmturum hjá einum viðskiptavini.

Þrátt fyrir að fyrirtækið sé ungt segja eigendurnir að þeir leggi ríka áherslu á að þjónusta fyrirtæki hvar sem þau eru staðsett á landinu.

„Erum með samninga við nokkra flutningsaðila og oftar en ekki þá er varan afhent daginn eftir að hún er pöntuð hjá okkur, þannig að já, við teljum okkur bjóða uppá mjög góða og samkeppnishæfa þjónustu.“

Mikilvægt að bera saman verð og leita ráðgjafar

Spurðir hvaða ráð þeir myndu gefa þeim sem eru að hefja rekstur veitingastaðar eða hótels eru svörin einföld.

„Gerið verðsamanburð og fáið faglega ráðgjöf. Þó að fyrirtækið sé nýtt á markaði þá þýðir það ekki vankunnáttu.“

Þeir segja að góð ráðgjöf í upphafi geti sparað fyrirtækjum bæði tíma og fjármuni þegar til lengri tíma er litið.

Kynntu þér vöruúrval Pappírssölunnar á www.pappirssalan.is.

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á [email protected] eða hafa samband í síma 858 3444 eða 896 2524.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið