Vín, drykkir og keppni
Fræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
Veitingafólki gefst kostur á að sækja fræðslunámskeið á Leyni bar á Akureyri föstudaginn 17. júlí, þar sem farið verður yfir ýmsa þætti sem tengjast framleiðslu sterkra drykkja, kokteilagerð og mikilvægi klaka í framreiðslu.
Fræðslunámskeiðið er haldið af Drykkur heildsölu í samstarfi við Þoran Distillery og Klakavinnsluna.
Námskeiðið fer fram á milli klukkan 15 og 17 og er ætlað starfsfólki í veitingageiranum. Þátttaka er án endurgjalds, en skrá þarf þátttöku með því að senda tölvupóst á [email protected].
Á námskeiðinu verður Birgir Már, master distiller hjá Þoran Distillery, með fræðslu um framleiðsluferlið á bak við Marberg gin og jafnframt farið yfir helstu undirstöðuatriði í framleiðslu sterkra drykkja.
Gundars Eglitis, margverðlaunaður barþjónn og handhafi Golden Eagle verðlaunanna frá IBA Elite Bartenders Course, verður einnig meðal fyrirlesara. Hann mun sýna dæmi um kokteilagerð og fjalla um hvernig hægt er að þróa og bæta framreiðslu drykkja.
Fannar Alexander Arason, eigandi Klakavinnslunnar, verður sömuleiðis með erindi þar sem hann fjallar um hlutverk klaka í drykkjargerð og framreiðslu og hvernig mismunandi gerðir klaka geta haft áhrif á upplifun gesta.
Friðbjörn Pálsson, einn af eigendum Drykkur heildsölu, verður einnig á staðnum og kynnir vörulínu fyrirtækisins.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Keppni2 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð




