Vertu memm

Starfsmannavelta

Skúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur

Birting:

þann

Skúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur

Eigendurnir Arnþór Pálsson og Sveinn Arnar Davíðsson

Veitingastaðurinn Skúrinn í Stykkishólmi hefur greint frá því að stefnt sé að lokun á næstu vikum, takist ekki að finna nýja eigendur til að taka við rekstrinum. Þetta kemur fram í færslu sem eigendurnir, Arnþór Pálsson og Sveinn Arnar Davíðsson, birtu á ellefu ára afmæli staðarins.

Í færslunni rifja þeir upp að síðustu ellefu ár hafi verið bæði skemmtileg, lærdómsrík og gefandi, þótt reksturinn hafi einnig verið krefjandi á köflum. Þeir segjast þakklátir fyrir allar þær minningar og kynni sem orðið hafa til í gegnum árin og öllum þeim sem hafi lagt leið sína í Skúrinn.

Skúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur

Fram kemur að reksturinn hafi verið til sölu um nokkurt skeið. Markmiðið hafi verið að finna nýja eigendur sem vildu halda starfseminni áfram, en það hafi ekki gengið eftir.

Þar sem leigusamningur staðarins er að renna út hafa Arnþór og Sveinn ákveðið að endurnýja hann ekki. Að óbreyttu verði því skellt í lás á næstu vikum.

Þeir benda þó á að enn sé tækifæri fyrir áhugasama að stíga inn í reksturinn. Þeir segjast tilbúnir að skoða alla möguleika ef einhver hefur áhuga á að taka við, enda séu enn nokkrar stórar helgar eftir af sumrinu.

Í lok færslunnar færa þeir viðskiptavinum innilegar þakkir fyrir stuðninginn undanfarin ellefu ár. Sérstaklega eru fastagestir í hádeginu nefndir, en þeir hafi verið stór hluti af daglegu lífi Skúrsins og þeirra verði sárt saknað.

Skúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur

Jafnframt hvetja Arnþór og Sveinn gesti til að líta við á meðan enn gefst kostur, fá sér borgara og kveðja Skúrinn. Ef lokunin verður að veruleika verða þetta síðustu vikurnar sem hægt verður að fá sér hina vinsælu borgara staðarins, þar á meðal Eldri borgara, sem hefur um árabil verið þekktasti og vinsælasti borgari Skúrsins.

Skúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur

Að sögn eigendanna verður reksturinn með svipuðu sniði og verið hefur á meðan lokunarferlið stendur yfir og þeir segjast hlakka til að taka á móti sem flestum áður en þessum kafla lýkur.

Fleiri fréttir af Skúrnum má lesa hér.

Myndir: Facebook / Skúrinn

Tengt efni:

Skúrinn Pizza joint opnar í Stykkishólmi

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið