Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Steinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu

Birting:

þann

Narfeyrarstofa

Veitingahjónin Sæþór H. Þorbergsson og Steinunn Helgadóttir

Veitingastaðurinn Narfeyrarstofa í Stykkishólmi fagnar 25 ára afmæli sínu um þessar mundir og af því tilefni hafa eigendurnir, Steinunn Helgadóttir og Sæþór H. Þorbergsson matreiðslumeistari, birt hjartnæma þakkarfærslu til viðskiptavina, starfsfólks, fjölskyldu og velunnara.

Þar líta þau yfir farinn veg og þakka fyrir þann stuðning, traust og velvild sem hefur einkennt reksturinn frá upphafi.

Narfeyrarstofa

Þorbergur Helgi Sæþórsson útskrifaðist sem fyrsti matreiðsluneminn hjá Narfeyrarstofu í maí 2018. Í dag gegnir hann stöðu yfirkokks og aðstoðarhótelstjóra á Fosshótel Stykkishólmi.

Í færslunni kemur einnig fram að sonur þeirra hafi verið fyrsti matreiðsluneminn sem útskrifaðist hjá fyrirtækinu, síðan þá hafa tveir aðrir matreiðslumenn lokið námi undir þeirra handleiðslu.

Hægt er að lesa Facebook-færsluna í heild sinni hér að neðan:

Kæru viðskiptavinir, fjölskylda, vinir og velunnarar,

Næstkomandi laugardag fögnum við þeim merka áfanga að fyrirtækið okkar verður 25 ára. Af því tilefni viljum við færa ykkur öllum okkar innilegustu og hjartnæmustu þakkir.

Þessi 25 ár hafa verið einstök ferð, full af vinnu, lærdómi, gleði og samveru. Það er okkur ómetanlegt að hafa fengið að byggja upp þetta fjölskyldufyrirtæki með stuðningi, trausti og velvild ykkar allra. Án ykkar hefði þetta aldrei orðið að því sem það er í dag.

Við viljum þakka sérstaklega öllum okkar viðskiptavinum fyrir tryggðina og velvildina í gegnum árin. Ykkar stuðningur hefur verið okkur ómetanlegur og hefur hvatt okkur áfram í hverju skrefi.

Við viljum líka færa öllu því góða fólki sem hefur unnið með okkur í gegnum tíðina okkar bestu og innilegustu þakkir. Án ykkar hefðum við ekki getað gert þetta. Ykkar framlag, dugnaður og hollusta hafa átt stóran þátt í að móta það starf og þann anda sem hefur einkennt fyrirtækið okkar alla tíð. Við erum ykkur afar þakklát fyrir ómetanlegt starf, góðan samstarfsanda og allar þær stundir sem við höfum átt saman.

Narfeyrarstofa

Sæþór H. Þorbergsson og Steinunn Helgadóttir við upphaf rekstursins fyrir 25 árum.
Í dag fagnar Narfeyrarstofa fjórðungsaldar afmæli.

Við höfum einnig lagt metnað okkar í að veita ungu fólki tækifæri til að starfa með okkur og læra af reynslunni. Okkur hefur alltaf þótt mikilvægt að vinna með þeim af því að starf er ekki aðeins vinnustaður, heldur líka skóli í ábyrgð, stundvísi, snyrtimennsku, góðri framkomu og virðingu í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsfólk.

Við höfum reynt að kenna þeim að leggja sig fram, mæta á réttum tíma, sinna hreinsun og frágangi af vandvirkni og sýna fagmennsku í allri framkomu. Okkur hefur alltaf fundist mikilvægt að ungt fólk finni að framlag þeirra sé metið að verðleikum. Það hefur verið okkur sérstök ánægja að sjá ungt fólk styrkjast í starfi, öðlast sjálfstraust og taka með sér dýrmæta reynslu út í lífið. Við höfum líka sett mikið inn í okkar reynslubanka, þau hafa kennt okkur mikið og haldið okkur ungum í anda. Allir þessir krakkar munu alla tíð eiga stóran stað í hjarta okkar.

Narfeyrarstofa

Narfeyrarstofa árið 2022

Sérstakar þakkir viljum við færa börnunum okkar. Þau hafa á margan hátt borið með okkur þá fórn og það álag sem fylgir því að vera hluti af virkri fjölskyldu í rekstri, og hafa sýnt okkur mikinn skilning, stuðning, þolinmæði og kærleika í gegnum árin. Það er okkur ómetanlegt.

Við erum þeim af öllu hjarta þakklát fyrir ástina, þolinmæðina og þann styrk sem þau hafa sýnt okkur alla tíð. Við elskum að sjá þau sem fullorðnar manneskjur sem eru að standa sig vel í lífi og starfi og gætum við ekki verið heppnari. Þarna duttum við í mömmu og pabba lukkupottinn.

Einnig viljum við þakka tengdadóttir, foreldrum, og systkinum fyrir allan þann stuðning og kærleika sem þau hafa sýnt okkur. Fjölskyldan hefur alltaf verið hjartað í þessu öllu saman, og stuðningur ykkar, hvatning og hlýja hafa gert okkur kleift að halda áfram og vaxa.

Lærdómsferð til Ítalíu – Steinunn: „Narfeyrarstofa lokar ef enginn sýnir áhuga á að reka veitingastaðinn“

Steinunn Helgadóttir og Sæþór H. Þorbergsson fóru erlendis með starfsfólki Narfeyrarstofu árið 2024. Ferðin hófst í Varsjá, þar sem hópurinn var alls 17 manns, áður en kokkarnir héldu áfram í lærdómsferð til Rómar.

Börnin okkar hafa tekið virkan þátt í starfseminni frá unga aldri, og sonur okkar var fyrsti matreiðsluneminn sem við útskrifuðum, sem var okkur afar dýrmætt og við vorum að rifna úr stolti og mikil gleðistund hjá fjölskyldunni. Síðan þá höfum við einnig útskrifað tvo aðra matreiðslumenn, og það eru mikil forréttindi að sjá fólk vaxa og þroskast innan veggja fyrirtækisins.

Við viljum líka sérstakleg þakka barnabörnunum okkar. Ef þau mættu ráða þá væru þau bæði farin að vinna hjá okkur.

Við göngum inn í sumarið með þakklæti í hjarta og hlýjar minningar í huga. Það er okkur sannur heiður að fá að vera hluti af ykkar lífi og samfélagi, og við hlökkum til að taka á móti ykkur í sumar áfram með sama kærleika, hlýju og gleði og áður.

Með innilegri og hjartnæmri kveðju og kærum þakkarhug,

Steina og Sæþór

Á Veitingageirinn.is má finna fjölmargar fréttir um Narfeyrarstofu sem birst hafa í gegnum árin.

Myndir: úr einkasafni

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið